Skip to main content

Fréttir

Gripla XIX er komin út

Gripla XIX (2008) sem gefin er út af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er komin út, fjölbreytt að vanda.
 

Allt að fjórðungur íslenskra skattbænda á 17. öld kunni að skrifa

Afmælisrit Svavars Sigmundssonar 7. september 2009

 Svavar Sigmundsson verður sjötugur 7. september 2009. Af því tilefni mun Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gefa út afmælisrit honum til heiðurs með úrvali greina eftir hann. Valdar hafa verið 35 greinar eftir Svavar og spanna þær undanfarna fjóra áratugi. Meirihluti greinanna fjallar um nöfn og nafnfræði. Sjá eftirfarandi efnisyfirlit. Þar má finna greinar á sex tungumálum (dönsku, ensku, færeysku, íslensku, sænsku og þýsku). Auk þeirra verður í bókinni heildarskrá um útgefin rit Svavars Sigmundssonar. Bókin verður um 300 bls. að stærð.

Hagkvæm máltækni utan ensku – íslenska tilraunin

Á slóðinni http://iceblark.wordpress.com hefur verið opnuð heimasíða verkefnisins "Hagkvæm máltækni utan ensku – íslenska tilraunin" (Viable Language Technology Beyond English - Icelandic as a Test Case) sem hlaut þriggja ára öndvegisstyrk frá Rannsóknasjóði í janúar sl. Það er samstarfsverkefni fræðimanna við orðfræðisvið Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Verkefnisstjóri er Eiríkur Rögnvaldsson prófessor.

Menningarráð á landsbyggðinni

Á landsbyggðinni eru starfandi sjö menningarráð sem ná yfir afmörkuð svæði. Tilgangur þeirra er að efla menningarstarf á landsbyggðinni og stuðla að atvinnusköpun, samvinnu og gæðaþróun á menningarsviðinu. Á dögunum heimsóttu fulltrúar ráðanna Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum (SÁ) með það að markmiði að kynna starf menningarfulltrúanna og kynnast starfsemi stofnunarinnar. SÁ tengist landsbyggðinni á margan hátt enda deila íbúarnir áhuga sínum á íslenskri tungu og fræðum með borgarbúum. Upplýsingar um ráðin og menningarfulltrúana má fá á heimasíðum þeirra:

Sturlaðar sögur, afmælisrit Mette


Út er komið ritið Sturlaðar sögur, sagðar Úlfari Bragasyni, rannsóknarprófessor á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Ritið inniheldur yfir 30 greinar fræðimanna og félaga Úlfari til heiðurs. Víða er komið við eins og sjá má í efnisyfirliti ritsins.

Strandhögg 12. - 14. júní


Strandhögg er ráðstefna sem haldin verður á Ströndum dagana 12.-14. júní. Með þátttöku heimamanna og valinkunnra fræðimanna verður lögð áhersla á framsögu á vettvangi – allt frá Konungsvörðu og norður í Krossneslaug.  Meðal fyrirlesara í opinni málstofu um menningararf og jaðarmenningu er Guðrún Ása Grímsdóttir sagnfræðingur á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sagnfræðingafélag Íslands og Félag þjóðfræðinga á Íslandi í samstarfi við Þjóðfræðistofu og ReykjavíkurAkademíuna standa að ráðstefnunni.

Heilagar arkir, afmælisrit Mette


Út er komið ritið Heilagar arkir, færðar Jóhönnu Ólafsdóttur, ljósmyndara á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Ritið er afmælismyndabók þar sem fræðimenn og félagar Jóhönnu skrifa út frá myndum úr sínum fórum henni til heiðurs. Í ritinu má m.a. fræðast um stórskemmtilegar myndir úr starfi stofnunarinnar og af fólki því tengdu auk mynda sem Jóhanna hefur sjálf tekið.

David Håkansson heldur fyrirlestur 6. maí


David Håkansson, lektor við sænskudeildina í Háskólanum í Växjö í Svíþjóð, heldur fyrirlestur um efni doktorsritgerðar sinnar á vegum Íslenska málfræðifélagsins miðvikudaginn 6. maí kl. 16-17 í Öskju 128. Ritgerðina varði hann við norrænudeildina í Háskólanum í Lundi á síðasta ári og nefnist hún: ,,Syntactic Variation and Change. Subjectless Clauses in Old Swedish".

Íslenskt textasafn: Nýir efnisflokkar í opinni leit

Íslenskt textasafn er eitt af gagnasöfnum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Talsverður hluti safnsins er öllum opinn til orða- og dæmaleitar á vefsíðu stofnunarinnar og vex hann jafnt og þétt. Nýlega hafa bæst við tveir flokkar texta, skáldverk eftir 1980 og ævisögur. Þar með eru textaflokkarnir sem hægt er að leita í orðnir fjórtán, allt frá fornritum til bloggtexta frá allra síðustu árum.

Ávinningur þýðendaþings seint metinn í peningum


Alþjóðlegt þýðendaþing á Íslandi var haldið 23. - 26. apríl s.l. Í skýrslu um þingið kemur fram að þýðendur hafi kvatt landið með sól í hjarta, stútfullir af hugmyndum um nýjar þýðingar. Betri sendiherra Íslands á erlendri grund sé vart hægt að hugsa sér og markaðslegur ávinningur þess að fá þá hingað til lands verði seint metinn í peningum. Að þinginu stóðu Sagenhaftes Island, Bókmenntasjóður, Félag íslenskra bókaútgefenda, Rithöfundasambandið, Háskólasetur H.Í. á Höfn, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.