Vorið 2007 var haldin á Akureyri norræn ráðstefna um orðbókafræði – 9. Konference om leksikografi i Norden – á vegum norræna orðabókafræðifélagsins, NFL, og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Nú er komið út ráðstefnurit með greinum sem byggjast á fyrirlestrum af þinginu, alls 37 greinar eftir rúmlega 40 norræna orðabókafræðinga og viðfangsefnin eru fjölbreytileg. Margar greinar fjalla um norrænar orðabækur af ýmsu tagi, bæði nýlegar orðabækur og verk sem eru í smíðum, t.d. tvímála orðabækur, réttritunarorðabækur, mállýskuorðabækur og ferðamannaorðabækur.