Skip to main content

Fréttir

Leitin að Völuspá 24. mars


Eysteinn Þorvaldsson, íslenskufræðingur og fyrrverandi prófessor við Kennaraháskóla Íslands flytur erindi sem nefnist: Leitin að Völuspá þriðjudaginn 24. mars kl. 20.30. Fyrirlesturinn fer fram í bókhlöðusal Snorrastofu í Reykholti og er styrktur af Menningarráði Vesturlands. Aðgangseyrir er 500 kr. og er boðið upp á veitingar.

Örnefnaskráning í þjóðgarðinum á Þingvöllum


Einar Á. E. Sæmundsen fræðslufulltrúi þjóðgarðsins á Þingvöllum heldur fyrirlestur á vegum Nafnfræðifélagsins laugardaginn 21. mars kl. 13.15 í stofu 130 í Öskju, húsi Háskóla Íslands. Einar mun fjalla um skráningu örnefna í þjóðgarðinum og hvaða aðferðafræði er beitt. Yfir 800 örnefni hafa verið skráð inn á loftmyndagrunn í landupplýsingakerfi þjóðgarðsins eftir mismunandi örnefnaskráningum. Í fyrirlestrinum ræðir Einar um aðferðafræðina, örnefnaskráningar og grunngögn sem liggja til grundvallar.

Fyrirlesturinn er öllum opinn.

Stjórn Nafnfræðifélagsins

Staða háskólakennara í íslensku í Vínarborg laus til umsóknar


Laus er til umsóknar tímabundin kennarastaða í íslensku í Vínarborg. Staðan verður veitt frá 1. september 2009.

Umsækjendur skulu hafa lokið M.A. prófi í norrænum fræðum. Æskilegt er að þeir hafi kennslureynslu, íslensku að móðurmáli og góða þýskukunnáttu.

Upplýsingar um kennsluskyldu og launakjör fást hjá Úlfari Bragasyni, rannsóknarprófessor, í síma 562 6050 eða á skrifstofu skorar norrænna mála við Vínarháskóla í síma (43) 1 4277-43051; netfang: ina.ritter [hjá] univie.ac.at

Íslenska til alls - Alþingi hefur samþykkt tillögur Íslenskrar málnefndar

Alþingi samþykkti í gær þingsályktunartillögu menntamálaráðuneytis um að samþykkja tillögur Íslenskrar málnefndar um íslenska málstefnu. Hana má lesa á vef málnefndarinnar:

Íslensk málnefnd samdi tillöguna að undangenginni röð málþinga sem haldin voru á árinu 2008. Markmiðið með þeim var að efna til umræðu um mismunandi svið málstefnunnar og kalla fram sjónarmið hlutaðeigandi hópa:

Aukinn kraftur í örnefnaskráningu

Starfsmenn nafnfræðisviðs stofnunarinnar hafa í samstarfi við Landmælingar Íslands og Loftmyndir ehf. unnið að þróun veflægrar kortasjár fyrir örnefni. Þessi nýja veflausn mun án efa hleypa miklum krafti í skráningu og staðsetningu örnefna í stafrænan gagnagrunn. Sjá frétt á heimasíðu Landmælinga.

Forstöðumaður stofnunarinnar


Guðrún Nordal, prófessor, tók við starfi forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum þann 1. mars sl. Menntamálaráðherra skipaði Guðrúnu í embættið til 5 ára að fenginni umsögn dómnefndar stofnunarinnar um prófessorshæfi umsækjenda og stjórnar stofnunarinnar.

Menningarverðlaun DV veitt


Menningarverðlaun DV voru afhent í gær. Verðlaunin, sem voru veitt í átta flokkum - bókmenntum, byggingarlist, fræðum, hönnun, kvikmyndalist, leiklist, myndlist og tónlist -, eru fyrir framúrskarandi árangur á listasviðinu á síðastliðnu ári.

Guðrún Ása Grímsdóttir er tilnefnd til menningarverðlauna DV


Menningarverðlaun DV verða afhent í þrítugasta sinn í Iðnó í kvöld, miðvikudaginn 4.mars. Verðlaunin, sem eru veitt í átta flokkum - bókmenntum, byggingarlist, fræðum, hönnun, kvikmyndalist, leiklist, myndlist og tónlist -, eru fyrir framúrskarandi árangur á listasviðinu á síðastliðnu ári.

Ársskýrslan komin út


Ársskýrsla Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum fyrir árið 2008 er komin út á rafrænu formi. Hún hefur að geyma yfirlit yfir starfsemi stofnunarinnar og rekstrarreikning. Skýrsluna má opna í pdf skjali hér á síðunni.