Skip to main content

Fréttir

Nýdoktorastyrkir Rannsóknasjóðs


Vísindanefnd háskólaráðs auglýsir styrki sem ætlaðir eru nýdoktorum (post-docs) í starfi við Háskóla Íslands. Til nýdoktora teljast þeir sem lokið hafa doktorsverkefni sl. fimm ár.

Styrkhæfir eru nýdoktorar sem eru verkefnaráðnir tímabundið til að leggja stund á rannsóknir við Háskóla Íslands eða stofnanir í tengslum við hann. Styrkþega er heimilt að verja styrk til eigin launa eða annars kostnaðar við rannsóknir sínar.

Fréttabréf stofnunarinnar 2008 - 2 komið út (á ensku)


Stofnunin gefur út fréttabréf á ensku til að miðla upplýsingum um kennslu og rannsóknir í fornnorrænum og íslenskum fræðum, ráðstefnur og fundi, bækur og tímarit. Það kemur að jafnaði út tvisvar á ári og flytur fréttir bæði frá Íslandi og öðrum löndum. Fréttabréfið er sent stofnunum og fræðimönnum, hvarvetna í heiminum, sem Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur á póstfangaskrá sinni.

Íslensk málhreinsun. Sögulegt yfirlit eftir Kjartan G. Ottósson

Bókin „Íslensk málhreinsun. Sögulegt yfirlit“ eftir Kjartan G. Ottósson (1990) hefur um langt skeið verið ófáanleg. Nú er ný prentun á leiðinni á vegum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Hægt er að tryggja sér eintak á tilboðsverði, 2.900 kr., með því að senda tölvupóst á kari [hjá] hi.is fyrir 16. febrúar nk. Almennt útsöluverð bókarinnar verður 3.900 kr. Í tilboðsverðinu er ekki innifalinn sendingarkostnaður fyrir þá sem ekki hyggjast sækja bókina sjálfir á stofnunina.

Málstofur stofnunarinnar. Dagskrá vormisseris


Málstofur Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum halda áfram á vorönn með svipuðu sniði og í haust.

Dagskrá vormisseris verður þannig:

  • 30. janúar Birgit Nyborg: Að þýða riddarasögur
  • 27. febrúar Vésteinn Ólason: Arfleifð Árna Magnússonar
  • 27. mars Yelena Sesselja Helgadóttir: Íslenskar þulur síðari alda 
  • 24. apríl Ágústa Þorbergsdóttir: Þróun íðorðafræði
  • 29. maí Annette Lassen: Fornaldarsögur og lærdómsmenning

Efni hverrar málstofu verður kynnt nánar þegar nær dregur.

DNA-rannsóknir á bókfelli


Föstudaginn 23. janúar n.k. mun Timothy Stinson, dósent í ensku við fylkisháskólann í Norður-Karólínu, Bandaríkjunum, halda fyrirlestur í Bibliographical Society of America, New York, um tilraunir sem hann hefur staðið fyrir til þess að leiða í ljós hvort unnt sé að greina DNA erfðavísa í fornu bókfelli handrita og nota þá til þess að aldurs- og staðgreina handrit.

Lesa má nánar um verkefni Stinsons á þessum vefslóðum:

Gjöf Jóns Sigurðssonar - viðurkenningar


Úthlutað hefur verið úr sjóðnum Gjöf Jóns Sigurðssonar. Að þessu sinni voru veittar 12 viðurkenningar. Tveir fræðimenn á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum voru þeirra á meðal:

Hönnun hafin við hús stofnunarinnar


Hönnun er hafin við hús yfir stofnunina og íslenskuskor Háskóla Íslands. Grundvöllur hönnunarinnar er tillaga Hornsteina arkitekta ehf., vinningstillaga í samkeppni sem haldin var árið 2008, með sérstæðri sporöskjulaga grunnmynd og útveggjum skreyttum handritatextum. Nánari upplýsingar má fá á heimasíðu Framkvæmdasýslu ríkisins.

Íslenskt mál og íslensk málstefna 20. janúar


Málþingið „Íslenskt mál og íslensk málstefna“ fer fram þriðjudaginn 20. janúar kl. 15-16:30 í Skriðu í Stakkahlíð, húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Málþingið er á vegum Rannsóknarstofu í íslenskum fræðum og íslenskukennslu.

Fjallað verður um stöðu móðurmálsins í stærsta vígi kennaramenntunar á Íslandi með hliðsjón af nýútkomnum tillögum Íslenskrar málnefndar að íslenskri málstefnu og nýlegri umræðu á Alþingi. Á málþinginu gefst tækifæri til að ígrunda mikilvæg atriði sem tengjast móðurmáli og kennslustefnu.

Úrslit í Nýyrðasamkeppni í 5.-7. bekk grunnskóla

Úrslit hafa nú ráðist í Nýyrðakeppni í 5.–7. bekk grunnskóla sem hleypt var af stokkunum á degi íslenskar tungu 16. nóvember sl. Íslensk málnefnd hafði frumkvæði að keppninni en ásamt málnefndinni stóðu Námsgagnastofnun, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Skýrslutæknifélag Íslands að keppninni. Undirbúningshópur sem stóð að keppninni hefur nú lokið við að fara yfir úrlausnir. Alls bárust úrlausnir frá 1763 nemendum í 82 skólum (af 176 á öllu landinu) um allt land. Árið 2007 voru ríflega 13.000 nemendur í 5.–7.

Handritin fjarlægð tímabundið af sýningunni

Handritin sem alla jafna eru sýnd á handritasýningu stofnunarinnar í Þjóðmenningarhúsinu hafa verið fjarlægð tímabundið af sýningunni. Er þetta gert vegna nauðsynlegra endurbóta á sýningaskápum. Um leið og endurbótum er lokið verður handritunum komið aftur fyrir á sýningunni. Þangað til er sýningin að öðru leyti opin gestum.