Skip to main content

Fréttir

Út er komin hjá Hugvísindastofnun bókin ,Í garði Sæmundar fróða'


Árið 2006 héldu Oddafélagið, Árnastofnun og Heimspekistofnun ráðstefnu um Sæmund fróða í tilefni af því að liðin voru 950 ár frá fæðingu Sæmundar (1056–1133). Í fyrri hluta bókarinnar eru prentuð erindi frá ráðstefnunni, en í seinni hlutanum er birt Ævi Sæmundar fróða eftir Árna Magnússon sem hefur ekki áður komið út á íslensku.

Styrkir Snorra Sturlusonar veittir í sautjánda sinn

Í tilefni af 750. ártíð Snorra Sturlusonar, 23. september 1991, ákvað ríkisstjórn Íslands að efna til styrkja sem kenndir yrðu við nafn hans. Samkvæmt reglum um styrkina, sem gefnar voru út 1992, skulu þeir árlega boðnir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. Styrkirnir skulu veittir í þrjá mánuði hið minnsta og miðast við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega og dvalarkostnaði innanlands.

Kínverjar læra íslensku við Beijing Foreign Studies University


Beijing Foreign Studies University (BFSU – Beijing waiguoyu daxue) bauð í fyrsta sinn í haust upp á fjögurra ára nám í íslensku, og eru 16 nemendur skráðir í námið. Gísli Hvanndal er íslenskukennari við BFSU. Menntamálaráðuneyti styrkir kennsluna í gegnum Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Styrkir til doktorsnáms og rannsókna við Háskólann í Bergen lausir til umsóknar


Háskólinn í Bergen hefur auglýst styrki til doktorsnáms og rannsókna í miðaldafræðum við ,,Centre for Medieval Studies in Bergen" lausa til umsóknar. Umsóknarfrestur rennur út 25. janúar 2009.

Lesa má um styrkina til doktorsnáms á heimasíðunni:

Nánari upplýsingar um styrki fyrir tímabundnar rannsóknarstöður:

Styrkur til að tölvuvæða efni úr kveðskaparmáli


Þjóðhátíðarsjóður hefur úthlutað styrkjum fyrir árið 2009. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, orðfræðisvið, fékk styrk til að slá efni um 70000 seðla með orðum úr kveðskaparmáli, inn í tölvu og leggja út á vefinn. Stjórn verksins er í höndum Guðrúnar Kvaran og Gunnlaugs Ingólfssonar. Styrkurinn hljóðar upp á 1.500.000. 

Icelandic Online


Í tilefni af 20 ára afmæli Tæknigarðs og afhendingu Hvatningarverðlauna Háskóla Íslands: Uppúr skúffunum var tekið útvarpsviðtal við verðlaunahafa. Þar á meðal var rætt við Birnu Arnbjörnsdóttur um verkefnið Icelandic Online sem vann til hvatningarverðlauna um árið.

Íslenskt orðanet stóraukið

Vefsíðan www.ordanet.is hefur nú verið endurnýjuð með stórauknu og fjölbreyttara efni til kynningar á verkefninu Íslenskt orðanet sem Jón Hilmar Jónsson og Þórdís Úlfarsdóttir vinna að ásamt aðstoðarmönnum. Meginviðfangsefni verkefnisins er merkingarleg greining og flokkun íslensks orðaforða, jafnt stakra orða sem (fastra) orðasambanda. Í því efni sem nú birtist fer mikið fyrir orðasamböndum, einkum sagnasamböndum af ýmsu tagi, en merkingarvenslum fjölmargra nafnorða og lýsingarorða eru einnig gerð skil.

Íslenska til alls á Netinu

Íslensk málnefnd kynnti tillögur að íslenskri málstefnu á málræktarþingi á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember s.l. Tillögurnar eru settar fram í ellefu köflum og snerta mikilvægustu svið þjóðlífsins að mati nefndarinnar. Útgáfan ber heitið Íslenska til alls og er nú aðgengileg á Netinu, á heimasíðu Íslenskrar málnefndar: www.islenskan.is