Skip to main content

Fréttir

Málstofa um norræna málstefnu, 6. desember


Málstofan „Internordisk kommunikation og nordisk sprogpolitik“ verður haldin á Radisson SAS Hótel Sögu, laugardaginn 6. desember og hefst klukkan tvö. Málstofan er hluti af ráðstefnunni „Cultures in Translation“ á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur og fer fram á dönsku, norsku og sænsku. Aðgangur er ókeypis.

Dagur íslenskrar tungu

Frá árinu 1996 hefur 16. nóvember, sem er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar, verið haldinn hátíðlegur og nefndur dagur íslenskrar tungu. Menntamálaráðuneyti hefur falið Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum að annast ýmsa verkþætti í tengslum við viðburði á degi íslenskrar tungu 2008. Upplýsingar gefur Ágústa Þorbergsdóttir á málræktarsviði, netfang: agustath@hi.is.

Merk heimild fyrir ættfræðirannsóknir - Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal

Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal er nú komið út á vegum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í tveimur bindum. Hér er um að ræða stórmerka frumheimild fyrir íslenskar ættfræðirannsóknir. Ættartölusafnritið er samtíðarheimild um ættir, afkomendur og búsetu fjölda Íslendinga á fyrri hluta 17. aldar. Af því spruttu yngri gerðir auknar efni um nýjar kynslóðir og frá þessum ritum er runnin ómæld þekking í prentuð ættfræðirit á nútíma.

Umsóknarfrestur til handritarannsókna í Kaupmannahöfn er til hádegis 20. nóvember

Umsókn um ríkisstyrk Árnastofnunar í Kaupmannahöfn fyrir árið 2009 rennur út 20. nóvember n.k. kl. 12. Styrkurinn er veittur íslenskum ríkisborgurum til handritarannsókna í Den Arnamagnæanske Samling í Kaupmannahöfn.

Um styrkinn geta sótt fræðimenn, með eða án háskólamenntunar. Styrkurinn er þetta árið um 21.000 danskar krónur á mánuði, auk ferðakostnaðar, og má veita umsækjanda í allt að tólf mánuði. Að jafnaði er styrkurinn aðeins veittur í 1-3 mánuði.

Gripla á heimasíðuna


Greinar úr tveimur nýjustu árgöngum Griplu má nú lesa á heimasíðu stofnunarinnar. Gripla er ritrýnt tímarit sem kemur út einu sinni á ári. Það er alþjóðlegur vettvangur fyrir rannsóknir á sviði íslenskra og norrænna fræða, einkum handrita- og textafræða, bókmennta og þjóðfræða. Greinar í Griplu eru að jafnaði á íslensku en einnig eru birtar greinar á öðrum norrænum málum, ensku, þýsku og frönsku. 

Ráðstefna um tal- og málmein 8. nóvember


Félag talkennara og talmeinafræðinga, Íslenska málfræðifélagið, Málvísindastofnun Háskóla Íslands og Heyrnar- og talmeinastöð Íslands gangast fyrir ráðstefnu um tal- og málmein laugardaginn 8. nóvember næstkomandi.

Fjallað verður um rannsóknir á málþroska táknmáls og raddmáls, stöðu íslenska táknmálsins sem móðurmáls, máltöku heyrnarskertra barna, framburð barna, greiningu á stami, þátt máltöku í málbreytingum, um málþroska fyrirbura, tengsl málfræðivillna og málþroskaröskunar, viðbrögð við alvarlegri málþroskaröskun ungra barna og um málörvun við upphaf skólagöngu.

Miðaldastofa: Strengleikar 6. nóvember

Næstkomandi fimmtudag (6. nóvember) verður önnur málstofa vetrarins á vegum miðaldastofu. Álfdís Þorleifsdóttir, meistaranemi í íslenskum bókmenntum, ræðir um strengleika.