Skip to main content

Fréttir

Kristín Marja Baldursdóttir hlaut Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2011

Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu 2011 voru afhent á hátíðardagskrá í Gerðubergi. Auk þess var veitt sérstök viðurkenning fyrir störf í þágu íslenskrar tungu. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra veitti Kristínu Marju Baldursdóttur Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2011. 

Í rökstuðningi ráðgjafarnefndar segir:

,,Veruleiki íslenskra kvenna er yrkisefni Kristínar Marju og varpar hún í verkum sínum ljósi á líf og störf kvenna, hlutverk, drauma og þrár.

Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir – Íslenska til hvers?

Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir, lektor á Menntavísindasviði HÍ, flutti erindi (Íslenska – til hvers?) á málræktarþingi Íslenskrar málnefndar og MS 12. nóvember 2011 sem vakti mikla athygli. Anna Þorbjörg gagnrýndi þar m.a. niðurskurð á íslenskukennslu í kjarna náms kennaranema á Menntavísindasviði HÍ.

Hér má sjá glærur Önnu Þorbjargar frá málræktarþinginu (PDF-skjal, 918 kb)

Viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskrar tungu

Málræktarþing Íslenskrar málnefndar og Mjólkursamsölunnar var haldið á laugardaginn.. Þar var kynnt ályktun Íslenskrar málnefndar um stöðu íslenskrar tungu 2011 og haldin erindi um málörvun og læsi.  Þar veitti Íslensk málnefnd einnig þrjár viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskrar tungu.

Orðanefnd rafmagnsverkfræðingadeildar Verkfræðingafélags Íslands er veitt viðurkenning fyrir íðorðastarf í sjötíu ár.

Reykjavíkurborg er veitt viðurkenning fyrir að hafa notendaviðmót á íslensku í öllum tölvum í grunnskólum Reykjavíkur.

Ræða minnkandi lestur og lesskilning

 

Minnkandi áhugi íslenskra barna á lestri og dvínandi lesskilningur þeirra verður til umræðu á árlegu Málræktarþingi Íslenskrar málnefndar og Mjólkursamsölunnar laugardaginn 12. október. Yfirskrift málþingsins er „Æska í ólestri – mál okkar allra“ en það er haldið í tilefni af degi íslenskrar tungu sem fagnað er árlega á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember.

Örnefni á vef hlýtur viðurkenningu


Nýsköpunarverðlaun 2011 hafa verið veitt. Verkefnið Skipulag rýminga vegna jökulhlaupa sem fylgja eldgosum í Kötlu og Eyjafjallajökli - Samstarf íbúa og almannavarnayfirvalda var verðlaunað að þessu sinni.

Þrjú önnur verkefni fengu sérstaka viðurkenningu. Eitt þeirra er veftól sem Landmælingar Íslands hafa þróað í samstarfi við nafnfræðisvið Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Í umsögn dómnefndar um verkefnið segir:

Lektoraráðstefna í Vilníus í Litháen

Samstarfsnefnd um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis, sem starfar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, gengst fyrir ráðstefnu við háskólann í Vilníus í Litháen fyrir kennara í Norðurlandafræðum í Austur- og Suðaustur-Evrópu dagana 10. – 12. nóvember nk. Þátttakendur verða um 100 og koma víða að. Á ráðstefnunni verða flutt erindi um norrænt samstarf, tungumálastefnu og stefnu í umhverfismálum, kennslu tungumála á Netinu og norræna bókmenntasögu.

Skortur á þýðendum af íslensku


Nokkuð hefur verið rætt um skort á þýðendum af íslensku eftir hina jákvæðu umfjöllun sem kynningin á bókmenntum Íslendinga fékk í Frankfurt. Þar vakti Ísland mikla athygli sem heiðursgestur á bókamessunni á dögunum.