Skip to main content

Fréttir

Styrkir til rannsókna í Kaupmannahöfn

Den Arnamagnæanske kommission - Københavns Universitet

Styrkur til handritarannsókna í Kaupmannahöfn

Ríkisstyrkur Árnastofnunar í Kaupmannahöfn fyrir árið 2012 er laus til umsóknar. Styrkurinn er veittur íslenskum ríkisborgurum til handritarannsókna í Den Arnamagnæanske Samling í Kaupmannahöfn.

Um styrkinn geta sótt fræðimenn, með eða án háskólamenntunar. Styrkurinn er nú um 25.000 danskar krónur á mánuði, auk ferðakostnaðar, og má veita umsækjanda í allt að tólf mánuði. Að jafnaði er styrkurinn aðeins veittur í 1-3 mánuði.

Sálnahylkin í Schirn á myndbandi

Þorsteinn J. og Bjarni Felix Bjarnason fylgdust með þegar átta skinnhandrit voru flutt til Frankfurt á dögunum á sýningu Gabríelu Friðriksdóttur og hafa birt myndband á vef Sögueyjunnar:

Afar fátítt er að íslensku handritin séu flutt úr landi og aldrei áður hafa svo mörg íslensk fornhandrit verið sýnd í einu í Þýskalandi. Þýskir fjölmiðlar hafa sýnt sýningunni og handritunum mikinn áhuga.

Íslensk tónlist og ljóðalestur í tilefni afmælis HÍ

ORT Í HUNDRAÐ ÁR
Dagskrá með íslenskri tónlist helguð íslenskum skáldum í tilefni 100 ára afmælis Háskóla Íslands Hátíðarsal HÍ 5. október.

Á fyrstu háskólatónleikum haustsins, miðvikudaginn 5. október, flytja Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó, og Sigurður Ingvi Snorrason, klarínetta, verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Jón Þórarinsson, Jón Nordal, Hróðmar Inga Sigurbjörnsson og nýtt verk eftir Þuríði Jónsdóttur. Svanhildur Óskarsdóttir les ljóð eftir íslensk skáld með og án undirleiks.

Tónleikarnir hefjast kl. 12.30.

Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO


Reykjavík var fimmta borgin í heiminum til að hljóta þann heiður að vera útnefnd Bókmenntaborg UNESCO, og sú fyrsta utan ensks málsvæðis. Fyrir eru í samtökum Bókmenntaborga UNESCO borgirnar Edinborg í Skotlandi, Iowa City í Bandaríkjunum, Melbourne í Ástralíu og Dublin á Írlandi. Bókmenntaborgirnar eru hluti af stærra neti Skapandi borga UNESCO og er Reykjavík 29. borgin til að fá aðild að samtökunum. Upplýsingar má fá á vefsíðu sem komið hefur verið á fót fyrir borgina:

Meðferð handrita og flutningur til Þýskalands


Á næstu dögum verða átta handrit flutt til Þýskalands á sýningu Gabríelu Friðriksdóttur myndlistarmanns í tilefni Bókasýningar í Frankfurt þar sem Ísland er heiðursgestur.

Í Kastljósi í Sjónvarpinu þann 19. september var ágæt umfjöllun um sýninguna og flutning handritanna. Nokkur viðbrögð hafa orðið við þættinum. Margir hafa glaðst yfir verðmætum handrita og fyrirhugaðri sýningu en sumir undrast meðferð skinnhandrita sem mynduð voru, þá sérstaklega að menn meðhöndluðu þau án þess að nota hanska.

Heimasíða stofnunarinnar - lagfæringar

Heimasíða stofnunarinnar er lítillega löskuð þessa dagana. Allur texti er á sínum stað en útlitið er stundum annað en vant er, myndir horfnar af sumum síðum og tenglar virka ekki alltaf.

Við biðjum gesti síðunnar að vera þolinmóðir en unnið er að lagfæringum. Allar ábendingar og fyrirspurnir má senda til Rósu Sveinsdóttur, rosasve@hi.is.

Íslendingar afhenda Norðmönnum Morkinskinnu

Næstkomandi fimmtudag, 15. september, munu Íslendingar afhenda Norðmönnum sérútgáfu Hins íslenzka fornritafélags á Morkinskinnu við hátíðlega athöfn í Oslóarháskóla. Um er að ræða 2. hluta af þremur í þjóðargjöf Íslendinga til Norðmanna í tilefni af 100 ára afmæli endurreists konungsveldis í Noregi árið 2005. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra mun afhenda gjöfina, en við henni tekur Anniken Huitfeldt, menningarmálaráðherra Noregs.

Stofnunin er fimm ára

Í dag er stofnunin fimm ára. Þann 1. september árið 2006 voru Íslensk málstöð, Orðabók Háskólans, Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, Stofnun Sigurðar Nordals og Örnefnastofnun sameinaðar í Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Hin nýja stofnun tók við skyldum stofnananna fimm og þeim verkefnum sem þær sinntu. Dr. Vésteinn Ólason var skipaður í embætti forstöðumanns. Guðrún Nordal prófessor tók við embættinu þegar Vésteinn lét af störfum vegna aldurs í byrjun árs 2009.

Setningafræðilega greindur textabanki

Undanfarið hefur verið unnið að IcePaHC (Icelandic Parsed Historical Corpus), setningafræðilega greindum textabanka frá öllum öldum íslenskrar ritaldar. Þessu verki er nú lokið - búið er að greina eina milljón orða, u.þ.b. 100 þúsund frá hverri öld. Þar með er þetta orðið einn stærsti banki sinnar tegundar í heiminum. Bankinn verður hjálpartæki við rannsóknir á íslensku máli og þróun þess.

Um 60 nemendur í handritaskólanum

Alþjóðlegur sumarskóli í handritafræðum á vegum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Den Arnamagnæanske Samling í Kaupmannahöfn hófst í gær. Um 60 nemendur lesa handrit að þessu sinni en þetta er áttunda árið sem skólinn starfar. Námið fer fram í Reykjavík í sumar en annað hvert ár í Danmörku.

Samstarf er við Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn og háskólana í Tübingen, Zürich og Cambridge.

Nánari upplýsingar um skólann má fá á ensku: