Skip to main content

Fréttir

Einar G. Pétursson: Hulin pláss. Ritgerðasafn.

Á sjötugsafmæli Einars G. Péturssonar 25. júlí 2011 gaf Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum út rit honum til heiðurs. Það ber nafnið Hulin pláss og er úrval ritgerða sem Einar hefur samið á 35 ára ferli sínum við rannsóknir og útgáfur á stofnuninni. Ritið er 366 blaðsíður og skiptast ritgerðirnar í tvo flokka og hafa allar nema sú síðasta birst áður á prenti en eru nú yfirfarnar og auknar. Viðfangsefni í fyrri hluta eru bundin íslenskum fræðum og í síðari hluta er Einar á heimaslóðum í Dölum vestur.

ÍSLEX styrkt um 50 milljónir í Noregi

ÍSLEX veforðabókin í Noregi hefur hlotið rúmlega 50 milljóna króna styrk (2,5 milljónir norskra króna) frá menningar- og menntamálaráðuneyti Noregs til að vinna við orðabókina næstu tvö árin.

ÍSLEX veforðabókin er norrænt samstarfsverkefni, unnið af háskóla- og rannsóknarstofnunum á Norðurlöndum. Íslenski hlutinn er unninn á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Verkefnisstjóri er Halldóra Jónsdóttir og aðalritstjóri er Þórdís Úlfarsdóttir.

 

Sálnahulstur Gabríelu

Gabríela Friðriksdóttir myndlistamaður vinnur að sýningu sem verður opnuð í Schim Kunsthalle í Frankfurt í september. Sýningin er unnin í kringum skinnhandrit sem Gabríela valdi sjálf. Hún segir að valið eftir útlitinu hafi komið fræðimönnum á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum svolítið á óvart. Hún sér handritin fyrir sér sem einhvers konar hylki, sálnahlustur utan um reynslu og sögu fólks fyrr á tímum. Gabríela segir tilfinninguna þegar hún snerti handritin vera mjög sérstaka, hún fann orku streyma um sig.

Nöfn Íslendinga - ný og aukin útgáfa

 

Nöfn Íslendinga er jöfnum höndum fræðirit og uppflettirit um þau nöfn sem vitað er að Íslendingar hafi borið í aldanna rás og allt til nútímans. Verkið kom áður út árið 1991 en hefur nú verið rækilega endurskoðað auk þess sem um tvö þúsund nöfn hafa bæst við frá fyrri útgáfu. Alls er hér fjallað um sex þúsund nöfn Íslendinga.

Getið er um uppruna nafnanna og merkingu, aldur þeirra og tíðni, m.a. hversu algeng þau eru sem fyrra og seinna nafn, svo og sitthvað annað til fróðleiks og skemmtunar. Einnig er sýnd beyging allra nafnanna og mismunandi ritháttur.

Fimm milljóna styrkur til Icelandic Online

Nordplus styrkir vefnámskeiðið Icelandic Online um 30.000 evrur eða tæpar fimm milljónir króna. Styrkurinn verður nýttur til að vinna Icelandic Online 5 og 6.

Icelandic Online er samfellt námskeið sem byggist á myndrænu og gagnvirku námsefni. Skráðir notendur eru um 70.000. Aðgangur er ókeypis.

Að verkefninu standa Hugvísindastofnun Háskóla Íslands, íslenskuskor hugvísindadeildar Háskólans, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Íslensk gjaldmiðlaheiti frá árinu 1997 á vefnum

Bæklingurinn Íslensk gjaldmiðlaheiti er nú aðgengilegur á heimasíðunni. Bæklingurinn var gefinn út árið 1997 og var fyrstur í röðinni Smárit Íslenskrar málnefndar. Í bæklingnum er skrá um íslensk heiti á gjaldmiðlum erlendra ríkja ásamt leiðbeiningum um stafsetningu á þeim tíma.

Baldur Jónsson tók saman í samráði við Anton Holt, Ólaf Ísleifsson og Veturliða Óskarsson.

http://arnastofnun.is/page/arnastofnun_mal_ritmalnefndarinnar

 

 

Dísæt lex(íkógraf)ía kennd Þórdísi – nýtt frá Mettusjóði

 Út er komið ritið Díslex, Dísæt lex(íkógraf)ía kennd Þórdísi Úlfarsdóttur fimmtugri 27. apríl 2011. Í ritinu eru 19 stuttar en bráðskemmtilegar greinar Þórdísi til heiðurs.

Útgefandi er Menningar- og minngarsjóður Mette Magnussen sem starfsmenn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hafa umsjón með og gefa út til gamans fjölrituð smárit til heiðurs samstarfsmönnum sínum og öðrum kollegum er þeir eiga merkisafmæli.

Umsjón með útgáfunni höfðu Halldóra Jónsdóttir, Jón Hilmar Jónsson og Guðrún Kvaran.