Skip to main content

Fréttir

Nemendaheimsókn frá Kanada

Þann 7. júní heimsækja nemendur á sumarnámskeiði í Háskólanum í Manitoba Ísland. Þeir munu taka þátt í fyrirlestrum um sögu og náttúru á alþjóðlegu sumarnámskeiði í nútímaíslensku sem haldið er árlega hér á landi á vegum stofnunarinnar og Háskóla Íslands.
 

Árni Magnússon kvænist Mette Jensdatter Fischer

Árni Magnússon gekk að eiga Mette Jensdatter Fischer 16. maí árið 1709. Árni var þá 45 ára en kona hans var 19 árum eldri en hann. Mette var dönsk ekkja eftir konunglegan söðlasmið, Hans Wichmand að nafni, sem látist hafði 1707 og höfðu þau hjón búið við torgið hjá konungshöllinni. Sagt er að Árni hafi þekkt þau hjón og á stundum litið inn til þeirra á leið sinni í skjalasafnið og drukkið með þeim morgunte. Annars er lítið vitað um Mette Magnússon en hún mun hafa lagt með sér töluverðar eignir í bú þeirra hjóna.

Fréttabréf stofnunarinnar 2009 2 (á ensku)

Stofnunin gefur út fréttabréf á ensku til að miðla upplýsingum um kennslu og rannsóknir í fornnorrænum og íslenskum fræðum, ráðstefnur og fundi, bækur og tímarit. Það kemur að jafnaði út tvisvar á ári og flytur fréttir bæði frá Íslandi og öðrum löndum. Fréttabréfið er sent stofnunum og fræðimönnum, hvarvetna í heiminum, sem Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur á póstfangaskrá sinni.

Ársskýrslan komin út

Ársskýrsla Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum fyrir árið 2009 - styttri útgáfa - er komin út á rafrænu formi. Hún hefur að geyma yfirlit yfir starfsemi stofnunarinnar og rekstrarreikning.

Skýrsluna má opna hér á síðunni. Ársskýrslan í heild sinni birtist á næstu dögum.

Skýrsla rannsóknarnefndar í Textasafni SÁ

Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008 og tengda atburði er komin í Textasafn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum: www.lexis.hi.is/corpus

Dæmi um leit er t.d. ef leitað er að orðinu 'gengisáhætta' finnast 26 tilvik úr ýmsum köflum skýrslunnar. (Sláið inn orðið í reit, smellið á 'sækja orðmyndir', smellið svo á 'leita' neðst').

Orð og tunga 12 komin út

12. hefti tímaritsins Orð og tunga var að koma út. Í heftinu eru fimm greinar tengdar þema þess, "Nafnfræði í brennidepli". Þær fjalla allar um örnefni eða önnur staðaheiti frá ýmsum sjónarhornum. Höfundar eru Ari Páll Kristinsson, Guðrún Kvaran, Hallgrímur J. Ámundason, Svavar Sigmundsson og Torfi Hjartarson. Auk þemagreinanna eru birtar tvær greinar í þessu hefti. Sú fyrri er eftir Margréti Jónsdóttur og fjallar um beygingarsögu orða með viðskeytin -ing og -ung.