Hefðbundið Hugvísindaþing
Hugvísindaþing verður haldið með hefðbundnu sniði 11. og 12. mars 2022.
Nánar
Hugvísindaþing verður haldið með hefðbundnu sniði 11. og 12. mars 2022.
Nánar
Kenningasmiðir um endalok norrænnar byggðar á Grænlandi hafa lítið gert með frásögn arafróða (í merkingunni fróður maður sem þekkir sögu lands síns af frásögnum sér eldri manna, allt að tvö til þrjú hundruð ár aftur í tímann) af því hvernig fór fyrir síðustu norrænu mönnunum þar í landi.
Nánar
35. Rask-ráðstefna Íslenska málfræðifélagsins, í samvinnu við Málvísindastofnun Háskóla Íslands, verður haldin í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins laugardaginn 2. apríl 2022. Ráðstefnan er öllum opin. Dagskrá og hlekkir í útdrætti erinda má finna hér fyrir neðan. DAGSKRÁ: 10.25−10.30 Setning.
Nánar
Þriðjudaginn 22. mars kom hópur frá eistnesku tungumálamiðstöðinni CELR (Center of Estonian Language Resources) í heimsókn á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Hópurinn kynnti sér starfsemi á sviði máltækni en fékk einnig kynningu á verkefnum málræktarsviðs og orðfræðisviðs, sem og almenna kynningu á starfsemi stofnunarinnar.
NánarFulltrúar frá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum ætla að heimsækja Amtsbókasafnið miðvikudaginn 6. apríl kl. 15 og bjóða upp á skemmtilega smiðju fyrir börn og fjölskyldur.
Nánar
Í upphafi árs auglýsti Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í fyrsta skipti styrki til háskólanema. Styrkirnir eru veittir vegna lokaverkefna sem byggjast að verulegu leyti á rannsóknum á frumgögnum stofnunarinnar, hvort sem er á orða- og málfarssöfnunum, örnefnasafninu, handritasafninu eða þjóðfræðisafninu.
Nánar
Örnefnalýsingar eru til fyrir nær allar jarðir á Íslandi og eru nú að stórum hluta aðgengilegar á vefnum nafnið.is. Að baki hinu gríðarstóra safni liggja margs konar gögn: Handrit, örnefnalistar, rissaðir uppdrættir, bréf heimildarmanna til starfsmanna safnsins (áður Örnefnastofnunar) og fleira.
Nánar
Í nokkur ár hefur verið aðgengileg á vef stofnunarinnar orðabók á milli íslensku og rússnesku. Um er að ræða Íslenzk-rússneska orðabók frá árinu 1962 sem samin er af Valéríj P. Bérkov með aðstoð Árna Böðvarssonar.
NánarFulltrúar frá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum heimsækja Landnámssetrið laugardaginn 9. apríl kl. 14 og bjóða upp á skemmtilega handritasmiðju fyrir börn og fjölskyldur.
Nánar