Handritið AM 677 4° er nú komið út hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Fræðimaðurinn Andrea de Leeuw van Weenen hefur veg og vanda af útgáfunni. Ritstjóri er Haukur Þorgeirsson.
Nánar
Frá sautjándu öld er varðveittur aragrúi pappírshandrita sem geyma uppskriftir miðaldatexta. Í sumum tilvikum eru handritin ómetanleg vegna þess að forritin hafa glatast eftir að skrifað var upp eftir þeim. Önnur hafa lítið sem ekkert textagildi því að eldri forrit þess eru varðveitt.
NánarKvöldvaka á Sauðfjársetri á Ströndum. Sagt verður frá persónulegum heimildum frá 19. öld, bréfum og dagbókum. Viðburðurinn er haldinn í samvinnu Sauðfjárseturs á Ströndum, Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Ströndum − Þjóðfræðistofu og Fjölmóðs − fróðskaparfélags á Ströndum. Erindi flytja:
Nánar
Fjallað er um tilvitnunarmerki í 28. kafla ritreglna Íslenskrar málnefndar. Megináherslan þar er á notkun en einnig er vikið að útliti þeirra. Sagt er að að tvöföld tilvitnunarmerki séu „svona“ en einföld hins vegar ‘ ’ eða ‚ ‘.[1]
NánarÍðorðanefnd í hannyrðum hefur starfað innan Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum síðastliðin fimm ár. Nýlega var birt íðorðasafn fyrir prjón á netinu undir vefslóðinni idord.arnastofnun.is. Markmiðið með íðorðasafninu er að samræma orðanotkun innan fagsins, bæði hjá áhuga- og fagfólki, m.a.
Nánar