Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Hugvísindasvið Háskóla Íslands halda á hverju ári fjögurra vikna námskeið í íslensku fyrir um 26 norræna stúdenta. Námskeið í ár verður í Reykjavík 5.–29. júní. Námskeiðið er allt að 10 ECTS og samanstendur af rúmlega 70 kennslustundum.
NánarStofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Hugvísindasvið Háskóla Íslands standa fyrir alþjóðlegum sumarskóla í íslenskri tungu og menningu 3.–28. júlí.
Nánar
Tveir styrkir komu í hlut starfsmanna og verkefna á vegum Árnastofnunar.
Nánar
Hvað eiga sundlaugamenning, laufabrauð og bátasmíði sameiginlegt? Eru þetta lifandi hefðir og eiga þær erindi til UNESCO? Hvernig og hvers vegna varðveitum við lifandi menningararfleifð, þjóðhætti eða óáþreifanlegan menningararf?
Nánar
Um 1580 tillögur frá hátt í 3400 þátttakendum bárust í nafnasamkeppni um heiti á nýju húsi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands. Nafnið sem varð fyrir valinu er Edda. Í áliti dómnefndar segir meðal annars:
Nánar