Skip to main content

Fréttir

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Málræktarsjóði

Prentaðar orðabækur

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Málræktarsjóði.

Samkvæmt skipulagsskrá er tilgangur hans að:

a) að styrkja fjárhagslega nýyrða- og íðorðastarf í landinu,
b) að styrkja fjárhagslega starf orðanefnda sem vinna að þýðingum á tæknimáli eða sérhæfðu máli,
c) að styrkja fjárhagslega útgáfu handbóka og leiðbeininga um málnotkun,
d) að styrkja fjárhagslega útgáfu kennsluefnis í íslensku,
e) að styrkja fjárhagslega útgáfu orðabóka,
f)  að veita einstaklingum, samtökum og stofnunum viðurkenningu fyrir málvöndun og málrækt,
g) að styrkja með fjárframlögum hvers konar framtak sem verða má til þess að markmiðum 
    Málræktarsjóðs verði náð.

Úthlutað verður 4.000.000 kr.

Þeim sem óska eftir að sækja um styrk er bent á að hafa samband við Kára Kaaber framkvæmdastjóra sjóðsins í tölvupósti kari@hi.is eða kari.kaaber@arnastofnun.is, til að nálgast umsóknareyðublað.

Umsóknum skal skila til framkvæmdastjóra eigi síðar en 16. janúar 2021 í áðurnefndum tölvupósti.