Skip to main content

Fréttir

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Málræktarsjóði

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Málræktarsjóði.

Samkvæmt skipulagsskrá er tilgangur hans:

a) að styrkja fjárhagslega nýyrða- og íðorðastarf í landinu,
b) að styrkja fjárhagslega starf orðanefnda sem vinna að þýðingum á tæknimáli eða sérhæfðu máli,
c) að styrkja fjárhagslega útgáfu handbóka og leiðbeininga um málnotkun,
d) að styrkja fjárhagslega útgáfu kennsluefnis í íslensku,
e) að styrkja fjárhagslega útgáfu orðabóka,
f) að veita einstaklingum, samtökum og stofnunum viðurkenningu fyrir málvöndun og málrækt,
g) að styrkja með fjárframlögum hvers konar framtak sem verða má til þess að markmiðum 
   Málræktarsjóðs verði náð.

Þeim sem óska eftir að sækja um styrk er bent á að hafa samband við Jóhannes B. Sigtryggsson, framkvæmdastjóra sjóðsins, í tölvupósti, malraektarsjodur@gmail.com, og biðja um að fá sent umsóknareyðublað.

Umsóknum skal skila til framkvæmdastjóra eigi síðar en 16. janúar 2022 í tölvupósti, malraektarsjodur@gmail.com.