Skip to main content

Fréttir

Borgfirskar sagnakonur í brennidepli

Rósa Þorsteinsdóttir.

 

Snorrastofa fagnar nýju ári með fyrirlestri Rósu Þorsteinsdóttur þjóðfræðings á Árnastofnun um borgfirskar sagnakonur. Fyrirlesturinn er hluti fyrirlestraraðarinnar Fyrirlestrar í héraði og verður fluttur þriðjudaginn 15. janúar næstkomandi kl. 20.30.

Rósa nefnir fyrirlesturinn  „Hefði botnlanginn verið lengri, þá hefði sagan orðið lengri“.  Heiti hans er tekið úr sögunni af stráknum sem var svo lítill að hann náði ekki upp í nefið á sér, en sú saga var hljóðrituð eftir Steinunni Þorsteinsdóttur, húsfreyju á Rauðsgili, á sjöunda áratug síðustu aldar.  Steinunn er ein sjö kvenna úr Borgarfirði sem hafa sagt ævintýri inn á segulbönd sem varðveitt eru í þjóðfræðisafni Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.  Ætlunin er að fjalla um þessar konur og ævintýrin þeirra, sagt verður frá konunum sjálfum, hvaða ævintýri þær segja, af hverjum þær lærðu þau og hvernig þær gera þau að sínum eigin sögum.

Rósa Þorsteinsdóttir er rannsóknarlektor  og hefur  umsjón með þjóðfræðisafni Árnastofnunar. Óhætt er að segja að hún hafi vakið það safn til lífsins með því að gera um það aðgengilega skrá, auk þess sem hún hefur verið ötul við að miðla efni þess  til landsmanna, meðal annars í Ríkisútvarpi, á hljómplötum og í bókum.

Þá minnir Snorrastofa einnig á Prjóna-bóka-kaffið, sem hefur göngu sína með hækkandi sól og verður hálfsmánaðarlega á fimmtudagskvöldum til vors, fyrsta kvöldið verður 10. janúar kl. 20. Þangað eru allir velkomnir.