Skip to main content

Fréttir

Ellefu erlendir námsmenn hlutu styrk

Skjaldarmerki Íslands

Um styrkina

Allt frá árinu 1949 hefur menntamálaráðuneytið veitt erlendum námsmönnum styrki til að stunda nám í íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands.

Árið 2010 tók Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum að sér umsýslu með styrkjunum. Þeir eru einkum ætlaðir þeim sem þegar hafa lagt stund á íslensku eða önnur norræn mál í heimalöndum sínum. Styrkþegarnir hafa komið frá um 40 löndum í Evrópu, Norður-Ameríku og Asíu.

Nýir styrkþegar

Að þessu sinni voru fjórir nýir styrkþegar frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Kína og Rússlandi sem hófu BA-nám í íslensku sem öðru máli og að auki sjö framhaldsstyrkþegar frá Búlgaríu, Frakklandi, Hollandi, Japan, Kína, Póllandi og Þýskalandi.

Þess má geta að í hópi þeirra sem hafa notið styrkja frá upphafi eru margir háskólaprófessorar í norrænum fræðum, íslenskukennarar við erlenda háskóla og mikilvirkir þýðendur íslenskra bókmennta.

Sjá lista yfir styrkþega frá upphafi.