Skip to main content

Fréttir

Evrópsk MA-ritgerðasamkeppni innan efnissviðanna málnotkun, málstefna og margmála umhverfi

Samtökin EFNIL (European Federation of National Institutions for Language) standa að evrópskri samkeppni þar sem höfundar MA-ritgerða geta keppt um peningaverðlaun. Ritgerðirnar eiga að vera innan efnissviðanna málnotkun, málstefna og margmála umhverfi

Möguleika á verðlaununum 2021 eiga ritgerðir sem lokið er, og háskólar hafa tekið gildar og gefið einkunn fyrir, eftir 1. sept. 2019 og fram til ársloka 2020. Umsóknarfrestur er til 31. des. 2020.

Þrjár MA-ritgerðir fá verðlaun. Veittar eru 1.500 evrur fyrir hverja verðlaunaritgerð, auk boðs um fyrirlestur og birtingu á grein. 

 Viðfangsefni í ritgerðasamkeppninni sem koma til álita hjá EFNIL eru einkum á eftirfarandi sviðum:

• að læra tvö tungumál samtímis („bilingual language learning“)
• aðferðir við tungumálakennslu
• málnotkun í margmála umhverfi
• markmið og áhrif málstefnu
• samanburðarrannsóknir á málstefnu
• máltækni og margmála umhverfi
• þýðingar og túlkun

Ritgerðir sem fjalla um og greina pólitískar aðgerðir eða stefnu fá forgang.

Ritgerðin getur sem best fjallað um íslensku eða Ísland þar sem tungumálið eða tungumálin sem fjallað er um í ritgerðinni mega vera hvaða Evrópumál sem er. En sjálf ritgerðin þarf hins vegar að vera á einhverju opinberu málanna í ESB, t.a.m. ensku, dönsku, þýsku, frönsku, sænsku, spænsku o.s.frv. Athugið að þrátt fyrir útgöngu Breta er enska enn opinbert mál innan ESB, sbr. Írland og Möltu.

Sjá nánar um samkeppnina, mat á ritgerðunum og önnur atriði er varða verðlaunin 2021 hér.

Þetta er í annað sinn sem keppnin er haldin. Verðlaun ársins 2020 hlutu þessar þrjár meistararitgerðir:

Nastja Slavec (Ljubljanaháskóla): 'To have' Irish in Corca Dhuibhne: Language ideologies and practices in a minority language community.

Magdalena Pawlik (Varsjárháskóla): The Art of Amendment: A Genre Analysis of Amendments Tabled by Members of the European Parliament in the Ordinary Legislative Procedure.

Kristina Babic (Vínarháskóla): Phonetic interference in second language acquisition of German. A study of phenomena of interference of Arabic-, Kurdish-, Romanian- and Bosnian/Croatian/Serbian-speaking learners of German as a second language.

Sjá nánar um verðlaunin 2020 hér