Skip to main content

Fréttir

Hlaðvarpið Glælogn í sumarfrí

Á vormisseri 2026 hafa hlaðvarpsþættir Árnastofnunar verið á dagskrá og hefur nýr þáttur birst á hverjum miðvikudegi. Seríurnar eru tvær og eru birtingar að jafnaði til skiptis úr hvorri fyrir sig. Glælogn er þáttaröð þar sem tveir umsjónarmenn ræða saman um nýleg fræðileg skrif, bæði bækur og tímaritsgreinar, á sviði norrænna fræða. Heimur í orðum eru viðtalsþættir þar sem rætt er við einn fræðimann hverju sinni um þær rannsóknir sem eru ofarlega á skrifborðinu. Frá því í janúar hafa alls tuttugu þættir farið í loftið en 27. maí sl. birtist síðasti þátturinn í þessari fyrstu atrennu. Fyrirhugað er að taka þráðinn upp aftur í hlaðvarpsheimum í byrjun næsta árs. 

Hér er hlekkur með hlaðvörpum vetrarins.