Skip to main content

Fréttir

Íðorðasafn í alþjóðastjórnmálum og stjórnmálafræði

Önnur útgáfa Íðorðasafns í alþjóðastjórnmálum og stjórnmálafræði kom út í lok árs 2021 og er hún um það bil tvöfalt stærri að umfangi en fyrri útgáfa sem kom út árið 2011. 

Orðasafnið nýtist til dæmis nemendum á sviði stjórnmálafræða og annarra félagsvísinda, sem og fólki í stjórnsýslu og fjölmiðlun. 

Nýja útgáfan inniheldur nú aukinn fjölda hugtaka á sviði fjölmiðla og kynjafræði en bæði þessi svið tengjast æ meira stjórnmálafræði og alþjóðasamskiptum. Ritstjórar orðasafnsins eru Ágústa Þorbergsdóttir, Salka Guðmundsdóttir og Silja Bára Ómarsdóttir.