Skip to main content

Fréttir

Málræktarþing Íslenskrar málnefndar

Ritun í skólakerfinu – málræktarþing Íslenskrar málnefndar og MS

Íslensk málnefnd og MS boða til málræktarþings í Þjóðminjasafninu miðvikudaginn 15. nóvember kl. 15.30 undir yfirskriftinni Ritun í skólakerfinu, þar sem velt verður upp spurningum um stöðu málsins í ræðu og riti með áherslu á ritfærni nemenda á ýmsum stigum skólakerfisins.

Verið öll velkomin

 

15.30 Setning

15.35 Kynning á ályktun Íslenskrar málnefndar um stöðu íslenskrar tungu 2017

15.40 Svanhildur Kr. Sverrisdóttir: Tólf ára, að verða þrettán

15.50 Baldur Sigurðsson: Hver dregur vagninn? Ábyrgð kennara á ritfærni nemenda

16.00 Þórdís Edda Jóhannesdóttir: Hvort á að skrifa ókey eða ókei? Nokkur orð um hugðarefni nemenda í ritun á háskólastigi

16.10 Höskuldur Þráinsson: Ritun og máltilfinning

16.20 Eliza Reid: „Á ég þá að mæta í búðingi?" Vandi þeirra sem flytja hingað og vilja tala og rita íslensku

16.30 Afhending viðurkenningar Íslenskrar málnefndar 2017

16.40 Kaffiveitingar