Skip to main content

Fréttir

Málþing um kynhlutlaust mál - Upptökur af fyrirlestrum

Undanfarin ár hefur skapast mikil umræða í íslensku samfélagi um kyn og hvernig félagslegar hugmyndir um kyn endurspeglast í íslensku máli, ekki síst frá málfræðilegu sjónarhorni. Þá hafa einnig orðið breytingar og tilbrigðum hefur fjölgað í notkun málfræðilegs kyns í máli fólks en æ fleiri málhafar reyna nú að færa mál sitt meira í átt til kynhlutlausara máls á einn eða annan hátt. Þessi þróun er að mestu leyti sprottin úr grasrótinni, enda tengist hún réttindabaráttu m.a. kvenna og jaðarsettra hópa, en í umræðu dagsins í dag birtast alls konar sjónarmið hinna ýmsu samfélagslegu hópa um efnið. Innan fræðasamfélagsins er einnig fjallað um kynhlutlaust mál frá ólíkum sjónarmiðum en sú fjölbreytilega umfjöllun hefur ekki endilega skilað sér til almennings eða út í samfélagsumræðuna. Hópur málfræðinga við Háskóla Íslands, sem er í þann mund að stofna Rannsóknastofu um félagsmálvísindi, og Íslensk málnefnd tóku höndum saman í byrjun ársins 2022, með það markmið að opna fræðilega umræðu um kynhlutlaust mál fyrir almenningi. Fyrsta skrefið í átt að þessu markmiði var að halda málþing um kynhlutlaust mál þann 30. apríl 2022 þar sem boðsfyrirlesarar úr íslensku fræðasamfélagi kynntu rannsóknir sínar og miðluðu þekkingu sinni um efnið frá ólíkum sjónarhornum.

Málþingið var tekið upp en hægt er að sjá upptöku hvers fyrirlesara með því að smella á nöfn þeirra.

Dagskrá

Opnun málþingsins – Eiríkur Rögnvaldsson

1. Guðrún Þórhallsdóttir – Hvað er kynhlutleysi? Sjónarmið, röksemdir, hugtök og heiti
2. Finnur Ágúst Ingimundarson – Mál og kyn í ljósi sögu og samtíma
3. Anton Karl Ingason – Hefð, jafnrétti og blandaðar sjálfsmyndir

Hlé í 20 mín.

4. Höskuldur Þráinsson – Hvað eru kynin mörg?
5. Hildur Lilliendahl Viggósdóttir – „Að berja niður venjulegt málfar meirihlutans í pólitískum tilgangi“
6. Þorbjörg Þorvaldsdóttir – Merking, málfræði og mannréttindi

Umræður

Í undirbúningsnefnd málþingsins sátu Anna Sigríður Þráinsdóttir, Eva María Jónsdóttir, Heimir F. Viðarsson og Ingunn Hreinberg Indriðadóttir.