Skip to main content

Fréttir

Ný útgáfa: Meyjar og völd. Rímur og saga af Mábil sterku

Bókin Meyjar og völd. Rímur og saga af Mábil sterku.
SSJ

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum kynnir nýja og spennandi útgáfu: Meyjar og völd. Rímur og saga af Mábil sterku. Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir er höfundur fræðitextans og bjó til útgáfu þrjár gerðir Mábilar rímna og Söguna af Mábil sterku og Móbil systur hennar.

Efni bókarinnar

Konungsdóttirin Mábil sterka frá Vallandi er öllum fremri í riddaralistum. Hún drýgir miklar hetjudáðir í bardögum og beitir óhefðbundnum aðferðum við að klekkja á helsta óvini sínum, Medeu drottningu í Grikklandi. Sömuleiðis ver hún Móbil systur sína frækilega gegn ásókn karla sem vilja kvænast henni og heimta þannig krúnuna.

Þrúður Þorsteinsdóttir, biskupsfrú á Hólum, fól Árna Magnússyni að leita uppi Rímurnar af Mábil sterku og varð það til þess að þær varðveittust í mörgum uppskriftum. Rímurnar hafa kynferðislegan undirtón og hafa varla verið taldar kristilegur kveðskapur. Í þessari bók er gerð grein fyrir leit Árna að handritunum og þrjár gerðir rímnanna eru birtar, sú elsta frá fimmtándu öld, önnur frá þeirri sautjándu og sú yngsta frá hinni átjándu. Rímurnar eru birtar með nútímastafsetningu og skýringum en einnig með stafsetningu handritanna. Í bókinni er einnig birt saga af Mábil frá nítjándu öld.

Mábil var ein af fræknustu hetjum íslenskra bókmennta í 500 ár en þetta er í fyrsta skipti sem frásagnirnar um hana birtast á prenti.

Nánar um höfundinn

Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir lauk BA-prófi í íslensku frá Heimspekideild Háskóla Íslands 1993 og meistaraprófi í íslenskum bókmenntum frá sama skóla árið 2004. Hún starfaði fyrir Stofnun Árna Magnússonar frá 1993 til 2002, hafði umsjón með skrifstofu stofnunarinnar og vann margs konar störf við bókaútgáfu, yfirlestur og tölvuvinnslu. Síðan hefur hún rekið ferðaþjónustu á Leirubakka á Landi og staðið þar fyrir margs konar menningarstarfi. Valgerður hefur jafnframt stundað ritstörf, skrifað greinar um bókmenntir og þjóðlegan fróðleik. Hún hefur einnig birt ljóð í tímaritum og árið 2020 gaf hún út ljóðabókina Öldufax, sjónarrönd af landi.