Skip to main content

Fréttir

Ný útgáfa: Structural Alteration of Manuscripts in the Arnamagnæan Collection

SSJ

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum kynnir nýtt og yfirgripsmikið fræðirit: Structural Alteration of Manuscripts in the Arnamagnæan Collection. Höfundur bókarinnar er Beeke Stegmann, rannsóknardósent við Árnastofnun.

Bókin er meðal annars fáanleg hjá Bóksölu stúdenta og í safnbúðinni í Eddu.

Efni bókarinnar

Handritasafnið sem kennt er við safnarann Árna Magnússon er eitt mikilvægasta safn norrænna og íslenskra handrita.

Í þessari bók er fjallað um hvernig Árni breytti fjölmörgum handritum í safni sínu með því að taka þau í sundur og setja hluta þeirra saman á nýjan hátt. Rannsakað er hvers konar breytingar hann gerði, hvernig hann fór að og hver tilgangur hans eða áform kunna að hafa verið.

Hér er um að ræða kódikólógíska – handritafræðilega – rannsókn þar sem saga handritasafnsins og breytingar Árna Magnússonar eru í forgrunni. Hún byggir aðallega á pappírshandritum frá 17. öld og upphafi 18. aldar en eldri skinnhandrit bera einnig merki um að hafa verið breytt af hendi Árna.

Jafnframt er sýnt fram á að hann var ekki sá eini sem breytti handritum; aðrir eigendur og forsjármenn, bæði fyrir hans tíma og eftir, aðlöguðu handskrifaðar bækur að sínum þörfum. Því endurspeglar hið efnislega form handritanna í safni Árna – og þá sérstaklega hvaða textum er raðað saman – oft fremur áherslur og markmið síðari tíma aðila en hinar upphaflegu fyrirætlanir.

Með þessu dýpkar bókin verulega þekkingu okkar á sögu handritasafns Árna Magnússonar og eykur skilning á því hvernig handritin eru samsett í dag.

Nánar um höfundinn

Beeke Stegmann lauk doktorsprófi í handritafræðum frá Kaupmannahafnarháskóla árið 2017. Hjá Árnastofnun stundar hún bæði efnislegar handritarannsóknir sem einblína t.d. á gerð, samsetningu og varðveislusögu handrita og hefur með höndum útgáfur á fræðilegum ritum, bæði á prentuðu og rafrænu formi.