Skip to main content

Fréttir

Styrkir Snorra Sturlusonar 2018

Í tilefni af 750. ártíð Snorra Sturlusonar, 23. september 1991, ákvað ríkisstjórn Íslands að efna til styrkja sem kenndir yrðu við nafn hans. Samkvæmt reglum um styrkina, sem gefnar voru út 1992, skulu þeir árlega boðnir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. Styrkirnir skulu veittir í þrjá mánuði hið minnsta og miðast við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega og dvalarkostnaði innanlands.

Styrkir Snorra Sturlusonar fyrir árið 2018 voru auglýstir í júlí sl. með umsóknarfresti til 1. nóvember. Fjörutíu og sex umsóknir bárust frá tuttugu og tveimur löndum.

Í úthlutunarnefnd styrkjanna eiga sæti Úlfar Bragason, rannsóknarprófessor, formaður, Ásdís Egilsdóttir, prófessor emeritus, og Pétur Gunnarsson, rithöfundur. Nefndin hefur nú lokið úthlutun.

Þau sem hljóta styrki árið 2018, til þriggja mánaða dvalar hvert, eru:

Dr. Blake Smith, Max Weber nýdoktor við European University Institute í Flórens á Ítalíu, til að fást við rannsóknir á Reisubók Jóns Ólafssonar Indíafara í sögu og samtíð.

Dr. Kate Heslop, lektor í norrænum miðaldafræðum við Kaliforníuháskóla í Berkeley, til að fást við rannsóknir á dróttkvæðum og minni.

Dr. Kate Heslop.
Dr. Blake Smith.