Skip to main content

Fréttir

Styrkir Snorra Sturlusonar 2026

Málverk Hauks Snorrasonar af Snorra Sturlusyni
Snorri Sturluson. Málverk eftir Hauk Stefánsson frá 1930.

Styrkir Snorra Sturlusonar fyrir árið 2026 voru auglýstir í september síðastliðnum með umsóknarfresti til 1. desember. Níutíu og níu umsóknir bárust frá fjörutíu og fjórum löndum.

Í úthlutunarnefnd styrkjanna eiga sæti Branislav Bédi formaður nefndarinnar, Gunnþórunn Guðmundsdóttir prófessor og Sindri Freysson rithöfundur.

Styrkþegar að þessu sinni eru eftirfarandi:

  • Dr. Alice Raw frá Cambridge-háskóla mun vinna að nýrri bók sem ber heitið Wandering Ware: Adventurous Genitalia in the Middle Ages. Á miðöldum gengu sögur í Norður- og Vestur-Evrópu um kynfæri með sjálfstæðan vilja óháð eiganda sínum. Í bókinni verður að finna endursagnir á nokkrum slíkum sögum, auk þess sem höfundur setur sögurnar í samhengi við hugmyndir samtímaheimspeki um kynverund, samþykki og kynlöngun.
  • Santiago R. Ibáñez Lluch mun vinna að þýðingu á síðustu sjö bókunum í Gesta Danorum eftir Saxo Grammaticus en hann hefur áður þýtt og skrifað skýringar við fyrstu níu bækurnar í verkinu. Hann mun leggja sérstaka áherslu á sögulega atburði sem finna má frásagnir um í íslenskum heimildum á borð við Knýtlinga sögu og Heimskringlu Snorra Sturlusonar.

Nánar um styrkina

Í tilefni af 750. ártíð Snorra Sturlusonar, 23. september 1991, ákvað ríkisstjórn Íslands að efna til styrkja sem kenndir yrðu við nafn hans.

Samkvæmt reglum um styrkina, sem gefnar voru út 1992, skulu þeir árlega boðnir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi.

Styrkirnir skulu veittir í þrjá mánuði hið minnsta og miðast við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega og dvalarkostnaði innanlands.

Frekari upplýsingar um styrkina og umsóknarferilinn.