Skip to main content

Fréttir

Styrkir úr málræktarsjóði

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Málræktarsjóði. Síðast var veitt úr sjóðnum árið 2022.

Samkvæmt skipulagsskrá er tilgangur sjóðsins:

a) að styrkja fjárhagslega nýyrða- og íðorðastarf í landinu,
b) að styrkja fjárhagslega starf orðanefnda sem vinna að þýðingum á tæknimáli eða sérhæfðu máli,
c) að styrkja fjárhagslega útgáfu handbóka og leiðbeininga um málnotkun,
d) að styrkja fjárhagslega útgáfu kennsluefnis í íslensku,
e) að styrkja fjárhagslega útgáfu orðabóka,
f)  að veita einstaklingum, samtökum og stofnunum viðurkenningu fyrir málvöndun og málrækt,
g) að styrkja með fjárframlögum hvers konar framtak sem verða má til þess að markmiðum Málræktarsjóðs verði náð.

Þeim sem hyggjast sækja um styrk er bent á að umsóknareyðublað er að finna á vef Málræktarsjóðs.

Umsóknum skal skila til framkvæmdastjóra eigi síðar en 16. janúar 2026 í tölvupósti, johans@hi.is.