Skip to main content

Fréttir

Ársskýrsla 2014

Ársskýrsla Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum fyrir árið 2014 er komin út. Ársskýrslan hefur að geyma yfirlit yfir starfsemi stofnunarinnar. Áhugasamir geta fengið skýrsluna senda í pósti (rosasve@hi.is) en einnig er aðgangur að henni á vefnum en í vefútgáfu skýrslunnar er auk þess yfirlit yfir rit og erindi starfsmanna.

Farkennsla safnkennara í grunnskóla á landsbyggðinni heldur áfram

Dagana 5. til 8. maí síðastliðinn var þráðurinn tekinn upp að nýju með farandkennsluverkefni safnkennara Árnastofnunar þegar fimm grunnskólar á Vesturlandi voru heimsóttir, nánar tiltekið á Snæfellsnesi og á Reykhólum. Skólarnir eru: Grunnskólarnir í Grundarfirði, Ólafsvík og Stykkishólmi auk Lýsuhólsskóla og Grunnskólans á Reykhólum.