Skip to main content

Fréttir

Styrkur til norrænna miðaldafræða

Alþjóðlegt meistaranám í norrænum miðaldafræðum - Nordic Masters Programme in Viking and Medieval Norse Studies hefst við Háskóla Íslands haustið 2012. Námið er á vegum Háskólans í samvinnu við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Háskólann í Ósló, Háskólann í Árósum og Árnastofnun við Háskólann í Kaupmannahöfn.

Hugmyndin handrit.is hlýtur fyrstu verðlaun

Hugmyndin www.handrit.is - rannsóknargrunnur og samskrá um íslensk og norræn handrit hefur hlotið 1. verðlaun í Hagnýtingarsamkeppni Háskóla Íslands 2010. Verðlaunin verða afhent á Háskólatorgi föstudaginn 19. nóvember og hefst athöfnin kl 16.

Vefurinn www.handrit.is er samskrá yfir íslensk og norræn handrit sem eru varðveitt í handritadeild Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Árnasafni í Kaupmannahöfn (Den Arnamagnæanske Samling).

Þrengt að íslenskri tungu

„Málnotkun í íslensku háskólasamfélagi hefur breyst á undanförnum árum og sú þróun hefur því miður oft orðið á kostnað íslenskrar tungu“ segir í ályktun Íslenskrar málnefndar um stöðu íslenskrar tungu árið 2010.

Í ályktuninni segir jafnframt að sjálfsagt sé að nota fleiri tungumál en íslensku í háskólasamfélaginu en ,,skylt er þó að tryggja að staða íslenskrar tungu sé sterk í háskólasamfélaginu á Íslandi; þar má hún ekki verða hornreka heldur á hún þvert á móti að eflast þar og dafna."

Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar í Landnámssetrinu

Á degi íslenskrar tungu, þriðjudaginn 16. nóvember, verður hátíðardagskrá þar sem mennta- og menningarmálaráðherra afhendir Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2010 auk tveggja sérstakra viðurkenninga fyrir störf í þágu íslensks máls.

Dagskráin verður í Landnámssetri Íslands, Brákarbraut 13-15 , Borgarnesi kl. 17-18. Allir eru velkomnir.

Dagskrá

Hátíðardagskrá Mímis og Mjólkursamsölunnar á degi íslenskrar tungu


Mímir félag stúdenta í íslenskum fræðum heldur dag íslenskrar tungu hátíðlegan með veglegri dagskrá þann 16. nóvember næstkomandi. Hátíðin fer fram í stofu 201 í Árnagarði við Suðurgötu milli kl. 17 og 19. Heiðursgestur er Helga Kress. Fyrirlestrar, skemmtiatriði og léttar veitingar. Dagskráin er í samstarfi við Mjólkursamsöluna. Allir eru velkomnir.

Aravísur. Nýtt afmælisrit frá Mettusjóði

Starfsmenn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gefa til gamans út fjölrituð smárit til heiðurs samstarfsmönnum sínum og öðrum kollegum er þeir eiga merkisafmæli. Síðustu árin hafa þessi rit verið kennd við Menningar- og minningarsjóð Mette Magnussen, en eiginkona Árna Magnússonar hét Mette.

Út er komið ritið Aravísur. Sungnar Ara Páli Kristinssyni fimmtugum 28. september 2010. Ritið inniheldur stuttar og skemmtilegar greinar fræðimanna og félaga Ara Páli til heiðurs.

Svanhildur Óskarsdóttir hlýtur verðlaun Dags Strömbäcks

Svanhildur Óskarsdóttir rannsóknardósent á stofnuninni hefur hlotið verðlaun úr sjóði Dags Strömbäcks fyrir skrif sín á sviði íslenskrar textafræði. Í rökstuðningi Konunglegu Gústafs Adolfs akademíunnar kemur fram að í verkum sínum takist Svanhildi einstaklega vel að flétta textafræðilegri skarpskyggni saman við bókmenntafræði og hugmyndasögulega nálgun.

Viðurkenningin verður veitt laugardaginn 6. nóvember á hátíðarfundi akademíunnar í Uppsalahöll. Verðlaunaféð nemur 40.000 sænskum krónum.

Upplýsingar um Gústafs Adolfs akademíuna, sjóði og styrki:

Hugvísindaþing 11.-12. mars og 25.-26. mars 2011


Hugvísindaþing Hugvísindasviðs Háskóla Íslands verður haldið dagana 11.-12. mars og 25.-26. mars 2011. Þingið verður með nokkuð öðru sniði á afmælisári Háskólans. Á  fyrra þinginu verða haldnir stakir fyrirlestrar, ekki raðað eftir efni en hið síðara verður þemaþing í ætt við þingið fyrri ára.

Doktorsstaða í Danmörku

Danir auglýsa doktorsstöðu innan verkefnisins ,,Dansk Editionshistorie". Eitt af undirsviðunum er rannsókn á útgáfum miðaldatexta (danskra og vestnorrænna). Hér gæti verið tækifæri fyrir þann sem vill t.d. rannsaka Jón Sigurðsson eða Konráð Gíslason. Umsjónarfrestur rennur út 10. nóvember kl. 12.00.