Skip to main content

Fréttir

Þjóðfræði í Þjóðarspegli 28. og 29. október

Þjóðarspegillinn, árleg ráðstefna félagsvísindanna í Háskóla Íslands, er föstudaginn 29. október. Á milli klukkan 11-17 verða þrjár málstofur í þjóðfræði með fyrirlestrum sem kynna nýjustu rannsóknir í faginu (í stofu 201 í Odda).

Daginn áður, fimmtudaginn 28. október milli 16.30-18.30, flytja nýskipaðir prófessorar í Félags- og mannvísindadeild prófessorsfyrirlestra sína í stofu 104 á Háskólatorgi. Fyrstur er Terry Gunnell, sem fjallar um hlutverk Óðins í íslensku samfélagi fyrir kristnitöku.

Dagskrá þjóðfræðinnar á Þjóðarspeglinum á föstudaginn:

Haukur Ingvarsson: ,,Andlitsdrættir samtíðarinnar: Síðustu skáldsögur Halldórs Laxness"


Annað rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða á þessu haustmisseri verður haldið fimmtudaginn 21. október, kl. 20 í húsi Sögufélagsins, Fischersundi 3. Þar flytur Haukur Ingvarsson, íslenskufræðingur og höfundur bókarinnar Andlitsdrættir samtíðarinnar: Síðustu skáldsögur Halldórs Laxness, samnefndan fyrirlestur. Höfundur lýsir erindi sínu á þessa leið:

Alþjóðleg ráðstefna um félagsmálvísindi, textasöfn og gagnagrunna


Dagana 7.-9. október verður haldin alþjóðleg ráðstefna um félagsmálvísindi, textasöfn og gagnagrunna. Málvísindastofnun Háskólans stendur að ráðstefnunni í samvinnu við tvö norræn rannsóknanet.

Skipuleggjendur ráðstefnunnar eru Þórhallur Eyþórsson, Eiríkur Rögnvaldsson, Ásta Svavarsdóttir, Höskuldur Þráinsson og Øystein A. Vangsnes.

Boðsfyrirlesarar eru Paul Kerswill (Lancaster), Sali Tagliamonte (Toronto), Alison Henry (Ulster) og Tony Kroch (Philadelphia) en aðrir fyrirlesarar koma frá Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Hollandi, Skotlandi og Færeyjum, auk Íslands.

Guðrúnarstikki. Nýtt afmælisrit frá Mettusjóði

Starfsmenn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gefa til gamans út fjölrituð smárit til heiðurs samstarfsmönnum sínum og öðrum kollegum er þeir eiga merkisafmæli. Síðustu árin hafa þessi rit verið kennd við Menningar- og minningarsjóð Mette Magnussen, en eiginkona Árna Magnússonar hét Mette.

Nýjasta ritið í þessum flokki er Guðrúnarstikki. Kveðinn Guðrúnu Nordal fimmtugri 27. september 2010. Ritið inniheldur stuttar og skemmtilegar greinar fræðimanna og félaga Guðrúnu til heiðurs.

Landnám norrænna og keltneskra þjóða á Suðausturlandi

Þórbergssetur og Háskólasetrið á Höfn standa fyrir málþingi helgina 2.-3. október sem ber yfirskriftina: „Landnám norrænna og keltneskra þjóða á Suðausturlandi“.

Málþingið er styrkt af menningarráði Austurlands og atvinnu- og rannsóknarsjóði Hornafjarðar og hefst á laugardagsmorgun 2. október og lýkur síðdegis á sunnudeginum.

Munnleg saga í Vísindakaffi í Kántrýbæ

Fræðasetur HÍ á Norðurlandi vestra og Rannís bjóða í Vísindakaffi í Kántrýbæ á Skagaströnd fimmtudaginn 23. september kl. 20-21:30

Mikilvægi munnlegrar sögu - Kynning á verkefni Fræðasetursins á Skagaströnd

Dagskrá