Skip to main content

Fréttir

Nýsköpun - íslensk vísindi

Nú er nýlokið gerð 12 þátta röð nýrra sjónvarpsþátta um vísindi og fræði á Íslandi. Hver þáttur er tæpar 30 mín. að lengd og inniheldur þrjú ólík viðfangsefni. Þannig kynnast áhorfendur á öllum aldri 36 áhugaverðum verkefnum úr flestum geirum vísinda og tækni en í þeim efnum er mikil gróska. Hver þáttarhluti byggir á líflegu myndefni og ferskum efnistökum, orðum vísindamannanna sjálfra og þulartexta. Þættirnir eru unnir fyrir RÚV í samvinnu við fjölmargar vísindastofnanir, háskóla, félög og rannsóknarsjóði.

30 gíslar, afmælisrit Mette

Út er komið enn eitt lítið afmælisrit frá Menningar- og minningarsjóði Mette Magnussen. Það heitir 30 gíslar teknir fyrir hönd Gísla Sigurðssonar fimmtugs 27. september 2009 og er með svipuðu sniði og hin fyrri. Í því eru 30 stuttar en bráðskemmtilegar greinar.

Handritaskólanum lokið - í Kaupmannahöfn næsta sumar

Sjötta alþjóðlega sumarskólanum í handritafræðum er lokið þetta árið. Yfir sextíu manns hurfu glaðir á braut eftir strangt nám og vikudvöl hérlendis. Skólinn er á vegum stofnunarinnar og Árnastofnunar í Kaupmannahöfn í góðu samstarfi við Landsbókasafn-Háskólabókasafn. Annað hvert ár fer námið fram í Kaupmannahöfn.

Aldarminning Ásgeirs Blöndals Magnússonar

Ásgeir Blöndal Magnússon, höfundur Íslenskrar orðsifjabókar (1989) og starfsmaður Orðabókar Háskólans um áratuga skeið, síðast sem forstöðumaður hennar, hefði orðið 100 ára 2. nóvember næstkomandi. Af því tilefni verður næsta málþing tímaritsins Orðs og tungu helgað minningu Ásgeirs. Það ber yfirskriftina Frá orði til orðs og verður haldið í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðunnar laugardaginn 7. nóvember. Fyrirlesarar verða átta, þ.á m. tveir erlendir gestir – Arne Torp frá Osló og Bente Holmberg frá Kaupmannahöfn. Dagskrá þingsins verður auglýst nánar síðar.

Vefnaður stofnunarinnar á Vísindavöku

Á vegum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hafa verið ofin mörg gagnasöfn sem nýtast mönnum í leik og starfi. Á Vísindavöku verða nokkur þeirra kynnt þar sem gestir geta leitað svara með aðstoð vísindamanna. Hver kannast ekki við óvissu um málnotkun, beygingu, merkingu og hver orti hvaða vísu? Er t.d. gott mál að segja; húsið opnar kl.

„Örnefni um landið“ - Svavar Sigmundsson með fræðslufundi

Örnefnasöfnun og örnefnaskráning eru hugðarefni manna um land allt. Svavar Sigmundsson stofustjóri Örnefnasafns Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum fer á næstunni um landið og verður á fræðslufundum um örnefni. Svavar hefur um langt árabil rannsakað örnefni og mun hann m.a. ræða um söfnun örnefna á svæðunum, mikilvægi þeirra og skráningu. Ókeypis verður inn á fundina og gefst nægur tími til að spyrja Svavar um hvað eina sem fólk vill vita um örnefnasöfnun og örnefnaskráningu.

Málstofur vetrarins hefjast 9. október

Að venju verða málstofur Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum haldnar mánaðarlega í vetur. Fram að jólum eru áætlaðar þrjár málstofur. Sú fyrsta verður föstudaginn 9. október (málstofunni hefur verið frestað) en síðan verða þær að jafnaði haldnar síðasta föstudag hvers mánaðar. Svavar Sigmundsson talar á málstofu í lok október og Guðrún Ingólfsdóttir heldur erindi á málstofu nóvembermánaðar.

Málstofur verða haldnar að Neshaga 16, í húsnæði orðfræðisviðs á efstu hæð, og hefjast kl. 15:00. Hver málstofa verður kynnt nánar á vefsíðu stofnunarinnar þegar nær dregur.