Skip to main content

Fréttir

Handritin fjarlægð tímabundið af sýningunni

Handritin sem alla jafna eru sýnd á handritasýningu stofnunarinnar í Þjóðmenningarhúsinu hafa verið fjarlægð tímabundið af sýningunni. Er þetta gert vegna nauðsynlegra endurbóta á sýningaskápum. Um leið og endurbótum er lokið verður handritunum komið aftur fyrir á sýningunni. Þangað til er sýningin að öðru leyti opin gestum.

Út er komin hjá Hugvísindastofnun bókin ,Í garði Sæmundar fróða'


Árið 2006 héldu Oddafélagið, Árnastofnun og Heimspekistofnun ráðstefnu um Sæmund fróða í tilefni af því að liðin voru 950 ár frá fæðingu Sæmundar (1056–1133). Í fyrri hluta bókarinnar eru prentuð erindi frá ráðstefnunni, en í seinni hlutanum er birt Ævi Sæmundar fróða eftir Árna Magnússon sem hefur ekki áður komið út á íslensku.

Styrkir Snorra Sturlusonar veittir í sautjánda sinn

Í tilefni af 750. ártíð Snorra Sturlusonar, 23. september 1991, ákvað ríkisstjórn Íslands að efna til styrkja sem kenndir yrðu við nafn hans. Samkvæmt reglum um styrkina, sem gefnar voru út 1992, skulu þeir árlega boðnir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. Styrkirnir skulu veittir í þrjá mánuði hið minnsta og miðast við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega og dvalarkostnaði innanlands.

Kínverjar læra íslensku við Beijing Foreign Studies University


Beijing Foreign Studies University (BFSU – Beijing waiguoyu daxue) bauð í fyrsta sinn í haust upp á fjögurra ára nám í íslensku, og eru 16 nemendur skráðir í námið. Gísli Hvanndal er íslenskukennari við BFSU. Menntamálaráðuneyti styrkir kennsluna í gegnum Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Styrkir til doktorsnáms og rannsókna við Háskólann í Bergen lausir til umsóknar


Háskólinn í Bergen hefur auglýst styrki til doktorsnáms og rannsókna í miðaldafræðum við ,,Centre for Medieval Studies in Bergen" lausa til umsóknar. Umsóknarfrestur rennur út 25. janúar 2009.

Lesa má um styrkina til doktorsnáms á heimasíðunni:

Nánari upplýsingar um styrki fyrir tímabundnar rannsóknarstöður:

Styrkur til að tölvuvæða efni úr kveðskaparmáli


Þjóðhátíðarsjóður hefur úthlutað styrkjum fyrir árið 2009. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, orðfræðisvið, fékk styrk til að slá efni um 70000 seðla með orðum úr kveðskaparmáli, inn í tölvu og leggja út á vefinn. Stjórn verksins er í höndum Guðrúnar Kvaran og Gunnlaugs Ingólfssonar. Styrkurinn hljóðar upp á 1.500.000. 

Icelandic Online


Í tilefni af 20 ára afmæli Tæknigarðs og afhendingu Hvatningarverðlauna Háskóla Íslands: Uppúr skúffunum var tekið útvarpsviðtal við verðlaunahafa. Þar á meðal var rætt við Birnu Arnbjörnsdóttur um verkefnið Icelandic Online sem vann til hvatningarverðlauna um árið.