Skip to main content

Fréttir

Skýrsla rannsóknarnefndar í Textasafni SÁ

Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008 og tengda atburði er komin í Textasafn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum: www.lexis.hi.is/corpus

Dæmi um leit er t.d. ef leitað er að orðinu 'gengisáhætta' finnast 26 tilvik úr ýmsum köflum skýrslunnar. (Sláið inn orðið í reit, smellið á 'sækja orðmyndir', smellið svo á 'leita' neðst').

Orð og tunga 12 komin út

12. hefti tímaritsins Orð og tunga var að koma út. Í heftinu eru fimm greinar tengdar þema þess, "Nafnfræði í brennidepli". Þær fjalla allar um örnefni eða önnur staðaheiti frá ýmsum sjónarhornum. Höfundar eru Ari Páll Kristinsson, Guðrún Kvaran, Hallgrímur J. Ámundason, Svavar Sigmundsson og Torfi Hjartarson. Auk þemagreinanna eru birtar tvær greinar í þessu hefti. Sú fyrri er eftir Margréti Jónsdóttur og fjallar um beygingarsögu orða með viðskeytin -ing og -ung.

Hver ákveður nafnið á nýju eldstöðinni neðan Fimmvörðuháls?

Mikill áhugi er hjá landsmönnum á nafngift nýrrar eldstöðvar neðan Fimmvörðuháls. Menntamálaráðherra hefur nú staðfest hver ákveður nafnið á hinu nýja kennileiti. Þrír opinberir aðilar hafa með örnefni að gera samkvæmt lögum: Landmælingar Íslands, nafnfræðisvið Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og örnefnanefnd. Starfshópur á vegum þeirra fer í sameiningu með ákvörðunarvald á nafngiftinni og hafa þeim borist fjölmargar tillögur.

Íslenskukennsla við University College of London

Vakin er athygli á að University College of London auglýsir eftir afleysingakennara í íslensku á tímabilinu frá 15. september 2010 til 14. júní 2011. Kennaranum er ætlað að kenna nútímaíslensku, íslenskar bókmenntir síðari alda og um íslenskt samfélag og menningu. Umsækjendur skulu a.m.k. hafa lokið M.A. prófi í íslensku eða sambærilegu prófi og hafa reynslu af að kenna íslensku á háskólastigi.

Unnt er að nálgast auglýsinguna á ensku á slóðinni: www.ucl.ac.uk/scandinavian-studies/

Vigdísarþing 15.-17. apríl

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur stendur fyrir alþjóðlegri ráðstefnu dagana 15.-17. apríl 2010 í tilefni af áttræðis afmæli frú Vigdísar Finnbogadóttur. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Varðveisla til framtíðar: Sjálfbærni tungumáls, menningar og náttúru og mun hún fara fram við Háskóla Íslands. 

Ráðstefnan samanstendur af lykilfyrirlesurum ásamt samhliða málstofum þar sem fjallað verður um bókmenntir, menningu og tungumál frá ýmsum sjónarhornum.

Meðal lykilfyrirlesara verða:

Landsmenn njóta lesturs og safna

Um 82% svarenda í könnun á menningarneyslu Íslendinga höfðu lesið bók sér til ánægju og rúmur helmingur svarenda (53%) hafði sótt listasafn eða myndlistarsýningu á síðustu 12 mánuðum. Þessar niðurstöður voru kynntar í gær. Könnunina gerði Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið síðastliðið haust. 1.200 Íslendingar lentu í úrtakinu og voru spurðir um þátttöku í menningarviðburðum síðustu 12 mánuði.

Niðurstöður könnunarinnar birtast í skýrslu sem má nálgast á heimasíðu menntamálaráðuneytis: