Rómverja saga
Rómverja saga er sett saman úr þýðingum þriggja latínurita, Bellum Jugurthinum og Conjuratio Catilinae eftir Sallústíus og Pharsalia eftir Lúkanus. Latínutextarnir voru að líkindum þýddir í áföngum, fyrst Bellum Jugurthinum upp úr miðri tólftu öld og hin ritin tvö skömmu síðar. Undir lok aldarinnar var þessum þýðingum svo steypt saman í eina sögu af Rómverjum, hugsanlega í klaustrinu á Þingeyrum....