Bókavarða hlaðin Guðnýju Ragnarsdóttur sextugri 9. janúar 2023
Afmælisrit gefið út af Menningar- og minningarsjóði Mette Magnussen. Umsjón með útgáfu Bókavörðu höfðu Gísli Sigurðsson og Rósa Þorsteinsdóttir.
Afmælisrit gefið út af Menningar- og minningarsjóði Mette Magnussen. Umsjón með útgáfu Bókavörðu höfðu Gísli Sigurðsson og Rósa Þorsteinsdóttir.
Afmælisrit gefið út af Menningar- og minningarsjóði Mette Magnussen. Um Fjörutíu þankastrik sáu Ari Páll Kristinsson, Ágústa Þorbergsdóttir, Haraldur Bernharðsson og Þórdís Úlfarsdóttir. Sigurður Stefán Jónsson hannaði kápuna.
Specimen Islandiæ non barbaræ (Sýnisbók þess að Ísland er ekki barbaraland) er bókmenntasögulegt rit, samið á latínu af Jóni Þorkelssyni (1697–1759) Skálholtsrektor. Markmið þess er að sýna hinum lærða heimi að Íslendingar séu menntuð bókmenntaþjóð. Sigurður Pétursson (1944–2020) þýddi verkið á íslensku en Hjalti Snær Ægisson bjó verkið til útgáfu. Útgáfan er tvímála og henni fylgja...
Kaupa bókinaFjórða bindið í fræðilegri heildarútgáfu á verkum Hallgríms Péturssonar (1614–1674), Ljóðmæli 4, er komið út hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Það hefur að geyma andlegan kveðskap sem tengist hringrás náttúrunnar, tímaskiptum, svo sem dægra- og árstíðabreytingum, bæði lengri sálma og stök vers, alls 39 talsins. Hér eru morgun- og kvöldsálmar, sálmar við upphaf vetrar og sumars;...
Kaupa bókinaLjóðmæli 3 er, eins og heiti bókarinnar gefur til kynna, þriðja bindi fræðilegrar heildarútgáfu á verkum Hallgríms Péturssonar (1614-1674). Í henni eru 43 sálmar, þar af 14 biblíusálmar eða ritningartextar í bundnu máli. Þá eru hér iðrunar- og huggunarsálmar, þar á meðal Hugbót sem skáldið orti þegar húsbruni varð í Saurbæ árið 1662. Auk lengri sálma eru nokkrar stökur, trúarlegs efnis. Textarnir...
Kaupa bókinaÁ fyrri öldum var mikið af stuttum sögum þýtt á íslensku. Safn slíkra sagna var gefið út af Hugo Gering 1882-3 undir heitinu Íslendzk œventýri. Þar merkir orðið siðbætandi saga með guðrækilegu efni og oft útleggingu. Gering talaði um enskan flokk, 18 æventýri, sem hann lét prenta eftir AM. 624, 4to, frá því um 1500, en í það handrit vantar. Við athugun á handritinu JS. 43, 4to, sem skrifað var í...
Margrét Eggertsdóttir sá um útgáfuna í samstarfi við Forlagið.
Fyrningar Ritgerðir um bókmenntir fyrri alda er greinasafn eftir Véstein Ólasonar sem inniheldur tuttugu og tvær ritgerðir á íslensku, ensku og norsku sem birtust frá 1969 til 2019. Þetta eru greinar um fornan kveðskap, greinar um fornsögur og loks greinar um Snorra Sturluson og verk sem honum hafa verið eignuð. Höfundur kenndi íslenskar bókmenntir við Háskóla Íslands, háskóla á Norðurlöndum og...
Kaupa bókinaHöfundur Ian J. Kirby. Bókin er gefin út í ritröðinni Rit Árnastofnunar (Rit 9).
Gunnar Pálsson (1714-1791) var prestssonur frá Upsum á Upsaströnd. Hann varð stúdent úr Hólaskóla 1735 og var djákn á Munkaþverá um skeið. Veturinn 1740-1741 dvaldist hann í Kaupmannahöfn og lauk guðfræðiprófi úr Hafnarháskóla um vorið. Hann var skólameistari á Hólum 1742-1753 og síðan prestur í Hjarðarholti í Laxárdal til 1784 og jafnframt prófastur til 1781. Síðustu æviárin fékkst hann við...