Skip to main content

Heiður og huggun. Erfiljóð, harmljóð og huggunarkvæði á 17. öld

Útgáfuár
2015
ISBN númer
978 997 965 4339
Heiður og huggun. Erfiljóð, harmljóð og huggunarkvæði á 17. öld.

Bókin Heiður og huggun. Erfiljóð, harmljóð og huggunarkvæði á 17. öld eftir dr. Þórunni Sigurðardóttur er komin út hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Háskólaútgáfan sér um dreifinguna.

Í bók Þórunnar er fjallað um bókmenntagreinar sem voru vinsælar áður fyrr en hafa ekki verið rannsakaðar að neinu marki hér á landi fram að þessu. Þær kallar höfundur harmljóð og huggunarkvæði og telur það skipta máli fyrir lestur, skilning og túlkun á einstökum kvæðum hverja af þessum kvæðagreinum miðað er við. Einnig eru birtir hér textar sem aðeins eru varðveittir í handritum og hafa ekki áður verið prentaðir. Kenningar um bókmenntagreinar (genre theory) eru notaðar til að endurskilgreina 17. aldar erfiljóð og sýnt fram á að sum kvæði sem ort voru að samtímamönnum skáldanna látnum tilheyra öðrum kvæðagreinum. Rannsakað var úr hvaða jarðvegi kvæðagreinarnar eru sprottnar og hvaða bókmenntalegu hefðir liggja þeim til grundvallar, en einnig það félagslega umhverfi sem þær tilheyrðu. Með aðferðum nýsöguhyggju (new historicism) er dregið fram félagslegt og sálrænt hlutverk kvæðagreinanna, sem lýtur í senn að skáldunum sem ortu kvæðin, þeim sem ort var um og þeim sem kvæðin voru ætluð. Jafnframt er sýnt fram á að þetta hlutverk hafi tengst félagslegu og menningarlegu valda­kerfi sem birtist bæði í efni kvæðanna og formi og endurspeglar því sterk tengsl samfélags og bókmennta á 17. öld.

Þórunn hefur um langt árabil stundað rannsóknir á bókmenntum síðari alda, auk þess að starfa við rafræna handritaskráningu, handritarannsóknir og útgáfu texta úr handritum við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Bókin er gefin út í ritröðinni Rit Árnastofnunar (Rit 91).
Kaupa bókina