Skip to main content

Orðabók Guðmundar Andréssonar

Útgáfuár
1999
ISBN númer
9979-60-467-0
Lexicon Islandicum. Orðabók Guðmundar Andréssonar.

Ný útgáfa í ritstjórn Gunnlaugs Ingólfssonar og Jakobs Benediktssonar.

Orðfræðirit fyrri alda IV.
Orðabók Háskólans 1999.

Guðmundur Andrésson samdi íslenska orðabók, Lexicon Islandicum, með latneskum skýringum á árunum 1650–1654. Hún kom út í Kaupmannahöfn árið 1683. Orðabókin var einkum ætluð erlendum lærdómsmönnum sem þá voru farnir að kynnast íslenskum fornritum og því er mikið af forníslensku orðafari í bókinni. Þó eru þar mörg orð og orðatiltæki úr samtíð höfundar, málshættir og kveðskaparbrot sem ekki eru heimildir um annars staðar. Bókin er því öðrum þræði merk heimild um íslenskan orðaforða á 17. öld og áfangi í sögu íslenskra orðabóka.

Gunnlaugur Ingólfsson og Jakob Benediktsson sáu um endurútgáfuna. Gunnlaugur ritar ítarlegan inngang að verkinu og hefur tekið saman stafrófsraðaða orðaskrá yfir íslensk orð sem koma fyrir í bókinni.
Hið íslenska bókmenntafélag annast sölu og dreifingu bókarinnar.

Í ritröðinni Orðfræðirit fyrri alda er endurútgáfa nokkurra gamalla orðabóka sem hafa sérstöðu í íslenskri orðabókagerð. Þær eru um leið mikilvægar heimildir um íslenskan orðaforða og íslenska málsögu.