Ásdís Egilsdóttir og Erlendur Sveinsson: Frá Jakobsvegi, heimur í orðum og myndum.
Frá Jakobsvegi, eða pílagrímaveginum til Santiago de Compostela á Spáni er sagt í nokkrum textum sem varðveittir eru í íslenskum handritum. Ein þeirra er Hrafns saga Sveinbjarnarsonar. Hrafn var víðförull pílagrímur og fór meðal annars til Santiago. Hrafn kemur einnig við sögu í kvikmyndabálkinum Draumurinn um veginn sem Erlendur Sveinsson gerði um göngu Thors Vilhjálmssonar til Santiago. Sagt verður frá sögunum, pílagrímaveginum fyrr og nú og sýnd brot úr kvikmyndunum.
2025-08-23T13:00:00 - 2025-08-23T14:00:00