Skip to main content

Viðburðir

Jónasarverðlaunin afhent í Eddu

16. nóvember
2023
kl. 16–17

Árnastofnun
Edda
Arngrímsgötu 5
107 Reykjavík
Ísland

Dagur íslenskrar tungu verður haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar 16. nóvember í 28. sinn.

Deginum hefur verið fagnað árlega frá árinu 1996 með því að leggja sérstaka rækt við íslenskt mál í samvinnu við fjölmiðla, stofnanir og félög. Á degi íslenskrar tungu eru jafnan veitt Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslensku.

Venju samkvæmt verða Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar afhent ásamt viðurkenningu dags íslenskrar tungu. Sýnt verður beint frá hátíðardagskránni á vef Stjórnarráðsins, sem haldin er að þessu sinni í Eddu.

2023-11-16T16:00:00 - 2023-11-16T17:00:00