Laugardaginn 6. júní kl. 14 mun Hjalti Snær Ægisson rannsóknarlektor veita leiðsögn um íslensku handritin sem fengin voru að láni frá Svíþjóð og verða til sýnis í Eddu næstu sex mánuði. Handritin fimm eru: Hómilíubókin sem skrifuð var um 1200, Uppsala-Edda, eitt af fjórum aðalhandritum Snorra-Eddu, eitt af aðalhandritum Grettis sögu, Bergsbók sem geymir konungasögur og er auk þess elsta handrit kvæðisins Lilju og loks handrit Snorra-Eddu frá 17. öld.
2026-06-06T14:00:00 - 2026-06-06T15:00:00