Skip to main content

Viðburðir

„Ónýtt“ í erlendu safni: Af fimm íslenskum handritum í Bretlandi og rafrænni heimkomu þeirra

Síða úr handriti Jónsbókar sem er varðveitt hjá John Rylands Research Institute and Library.
Síða úr handriti Jónsbókar sem er varðveitt hjá John Rylands Research Institute and Library.
Handrit.is

Halldóra Kristinsdóttir, sérfræðingur á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni, flytur fyrirlestur í tengslum við sýninguna Heimur í orðum.

Á sýningunni Heimur í orðum er nú til sýnis agnarsmátt skinnhandrit sem varðveitt er í háskólabókasafninu í Manchester, John Rylands Research Institute and Library.  Handritið er eitt fimm íslenskra handrita sem þar eru. Nýlega hófu Rylands-safnið og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn samstarf um að skrá, mynda og rannsaka handritin fimm.

Í fyrirlestrinum verður sagt frá samstarfinu, fjallað um handritin fimm og hvað olli því að þau eru varðveitt í Rylands-safninu. Einkum verður sjónum beint að einu þessara handrita, Jónsbók sem skrifuð var á 17. öld. Samstarf safnanna hefur leitt í ljós sterk tengsl handritsins við handrit sem varðveitt er í handritasafni Landsbókasafns og verða þessi tengsl og áhugaverð saga handritanna rakin.

Viðburður á Facebook

2026-01-13T12:00:00 - 2026-01-13T13:00:00