Skip to main content

Viðburðir

Skrifarasmiðja í Skálholti

13.–14. ágúst
2022
kl. 12–15

Starfsmenn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum heimsækja Skálholt 13. og 14. ágúst og bjóða upp á skemmtilega skrifarasmiðju fyrir börn og fjölskyldur. Smiðjan er opin frá kl. 12–15 báða dagana.

Í smiðjunni verður hægt að setja sig í stellingar handritaskrifara að fornu. Gestum býðst að munda fuglsfjaðrir, dýfa þeim í blek og rita svo hugsanir sínar á bókfell líkt og gert var á miðöldum. Hægt verður að skoða verkfæri sem notuð voru við bókagerð, fá fræðslu um það hvernig skinn voru verkuð og hvernig bækur voru búnar til.

Umsjónarmenn smiðjunnar eru Eva María Jónsdóttir, miðaldafræðingur og verkefnisstjóri hjá Árnastofnun, og Fjóla K. Guðmundsdóttir, þjóðfræðingur og vefstjóri stofnunarinnar.

Sjá einnig á Facebook-síðu Skálholts.

2022-08-13T12:00:00 - 2022-08-14T15:00:00