Skip to main content

Viðburðir

Sumarskóli í handritafræðum

Dagana 15.–25. júní verður Sumarskóli í handritafræðum haldinn í Eddu. Skólinn er haldinn til skiptis í Reykjavík og Kaupmannahöfn og er Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn samstarfsaðili Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum þau ár sem skólinn er haldinn hérlendis. Hátt í sextíu nemendur koma hingað til lands í ár og munu þeir sækja fyrirlestra og vinnustofur hjá stórum hópi sérfræðinga. Nemendum verður skipt í þrjá hópa eftir reynslu og þjálfun, þ.e. grunnnám, framhaldsnám og meistaradeild (e. masterclass). Á meðal þess sem boðið verður upp á er fræðsla um skrift, styttingar, forvörslu, bókband, skinnaverkun, tölvusetningu texta og litarefni í handritum. 

2026-06-15T08:00:00 - 2026-06-25T17:00:00