Fréttir og pistlar
Fréttir |
7. júní 2024
Úthlutun úr Watanabe styrktarsjóðnum við Háskóla Íslands
Watanabe styrktarsjóðurinn við Háskóla Íslands veitir styrki til nemenda og fræðimanna, en markmið sjóðsins er að styrkja fræðileg tengsl milli Háskóla Íslands og Japan. Einn styrkur kom í hlut starfsmanns Árnastofnunar í ár.
Fréttir |
6. júní 2024
Ársfundur Félags íslenskra fræða í Japan
Branislav Bédi, verkefnisstjóri á íslenskusviði Árnastofnunar, og Úlfar Bragason, prófessor emerítus við Árnastofnun, tóku þátt í ársfundi Félags íslenskra fræða í Japan sem var haldinn í fertugasta og fjórða sinn við háskólann í Matsumoto 25. maí sl. Á fundinum gafst tækifæri til að hitta kennara og nemendur frá mismunandi háskólum í Japan og ræða m.a. stöðu íslenskukennslu og rannsókna og útgáfu nýrra fræðirita og bóka.
Pistlar | 4. júní 2024
baldakin
Nýlega var orðinu baldakin bætt inn í Íslenska nútímamálsorðabók í merkingunni 'hlíf utan um ljósastæði'. Orðið er að finna í ýmsum orðabókum og af því eru til nokkuð mörg ritháttarafbrigði. Í Íslenskri orðsifjabók (1989) eru uppflettimyndirnar baldikin, baldrkinn, baldurskinn saman og merkingin er 'silkiefni eða -tjald'. Þar er orðið sagt tökuorð úr miðlágþýsku baldekin úr fornfrönsku baldaquin, „eiginlega 'efni eða dúkur frá Bagdad'“.
Fréttir |
22. maí 2024
Árlegur fundur íslenskukennara sem starfa við erlenda háskóla
Fundurinn var haldinn í Humboldt-háskóla í Berlín 13.–16. maí síðastliðinn. Á fundinum var rætt um íslenskukennslu fyrir erlenda námsmenn og kennsluefni sem stuðlar að því að íslenska sé notuð í gegnum leiki, í kennslustofum, við orðabókargerð veforðabókarinnar LEXÍU á þýsku og við notkun gervigreindar í akademísku námi.
Pistlar | 21. maí 2024
Sögugabb
Ýmislegt bendir til að sagnaþulir hafi stundum fengið nóg eða hafi stundum alls ekki nennt að segja sögur. Í þjóðfræðisafni Árnastofnunar er nefnilega að finna alls konar „formúlur“ og jafnvel „formúlusögur“ sem notaðar voru í þeim tilfellum þar sem börn eða aðrir þrábáðu um sagnaskemmtun.
Fréttir |
13. maí 2024
Kynnisferð til Slóvakíu
Tilgangur heimsóknarinnar var að skoða aðstæður íslenskra námsmanna á erlendri grundu, kortleggja aðlögun þeirra að slóvakísku samfélagi og athuga hvernig þeim gengur að eiga í samskiptum við heimamenn á slóvakísku og ensku.
Fréttir |
10. maí 2024
Rannsóknir á enskum áhrifum á óformleg samtöl
Rannsóknarhópurinn PLIS hlaut á dögunum tveggja ára styrk frá Nordplus språk.
Á döfinni
Allir viðburðir
Rótarskot – Listahátíð í Reykjavík
16. júní
kl. 14–16
Eddu
Arngrímsgötu 5
Reykjavík 107
Ísland
Stefnumót skálda og fræðimanna verður haldið á bókasafni Árnastofnunar í Eddu, Arngrímsgötu 5, sunnudaginn 16. júní kl. 14–16. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík.
Dagskrá:
Hugvekja – Pedro Gunnlaugur Garcia opnar viðburðinn og kynnir Landnámu hina nýju.
Samtal – Dögg Sigmarsdóttir, Martyna Daniel og Ágústa Þorbergsdóttir ræða um nýyrði og orðsköpun.
Ljóðalestur – Ewa Marcinek og Helen Cova flytja eigin verk.
Samtal og skáldskapur – Mao Alheimsdóttir og Elías Knörr segja frá reynslu sinni af því að vera „innflytjendaskáld“ og flytja eigin texta Landnáma hin nýja.
Sjá nánar á vef Listahátíðar Reykjavíkur.
Edda − Saga og hönnun
Edda er nýtt kennileiti í höfuðborginni þar sem fram fer fjölbreytt starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands. Hönnun hússins miðar að því að skapa sveigjanlega umgjörð um lifandi vísindasamfélag; örvandi samskipti nemenda, kennara og fræðimanna jafnt sem hljóða íhygli fræðimennskunnar.
Vefir, gagnasöfn og orðabækur
Vefir Árnastofnunar veita aðgang að fjölmörgum gagnasöfnum auk orðabóka. Hér að neðan má finna vefi stofnunarinnar.