Góðvinir Grunnavíkur-Jóns 30 ára – Ritgerð um leiki – afmælismálþing 4. maí
Edda - fyrirlestrasalur
Arngrímsgata 5
Reykjavík 107
Ísland
Í tilefni af 30 ára afmæli Góðvina Grunnavíkur-Jóns verður haldið afmælismálþing í Eddu laugardaginn 4. maí 2024 kl. 13.30–16.00.
Dagskrá:
Fimleikapiltar frá Gerplu undir stjórn Axels Ólafs munu sýna nokkra leiki frá átjándu öld úr riti Jóns.
Ingibjörg Björnsdóttir kynnir leikina.
Svavar Sigmundsson: Hver var Grunnavíkur-Jón?
Leikir: Einfaldir leikir
Guðrún Kvaran: Orðabókarstörf Jóns úr Grunnavík og ritgerð um leiki.
Leikir: Erfiðari leikir
Afmæliskaffi
Una Margrét Jónsdóttir: „Horfumst í augu grámyglur tvær“
Leikur: Ríða til Róms
Sólveig Hrönn Hilmarsdóttir: Glímt við latínutexta Jóns úr Grunnavík
Leikir: Bitaleikir
Pétur Gunnarsson: Sjáandinn Jón Ólafsson
Kynnir: Guðvarður Már Gunnlaugsson