Rótarskot – Listahátíð í Reykjavík
Eddu
Arngrímsgötu 5
Reykjavík 107
Ísland
Stefnumót skálda og fræðimanna verður haldið á bókasafni Árnastofnunar í Eddu, Arngrímsgötu 5, sunnudaginn 16. júní kl. 14–16. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík.
Dagskrá:
Hugvekja – Pedro Gunnlaugur Garcia opnar viðburðinn og kynnir Landnámu hina nýju.
Samtal – Dögg Sigmarsdóttir, Martyna Daniel og Ágústa Þorbergsdóttir ræða um nýyrði og orðsköpun.
Ljóðalestur – Ewa Marcinek og Helen Cova flytja eigin verk.
Samtal og skáldskapur – Mao Alheimsdóttir og Elías Knörr segja frá reynslu sinni af því að vera „innflytjendaskáld“ og flytja eigin texta Landnáma hin nýja.
Sjá nánar á vef Listahátíðar Reykjavíkur.
Óland kortlagt – ráðstefna um Eirík Laxdal
Eddu
Arngrímsgötu 5
Reykjavík 107
Ísland
Ráðstefnan Óland kortlagt – Skáldskapur Eiríks Laxdals í íslensku og alþjóðlegu samhengi verður haldin í fyrirlestrasal Eddu 30. og 31. ágúst 2024.
Ráðstefnan er haldin undir merkjum Árnastofnunar og Bókmennta- og listfræðastofnunar Háskóla Íslands og verða fyrirlestrar ýmist fluttir á íslensku eða ensku. Ráðstefnustjórn skipa Romina Werth, Margrét Eggertsdóttir og Jón Karl Helgason.
Nánari dagskrá verður kynnt síðar.