Árnastofnun fagnar 20 ára afmæli á árinu en árið 2006 voru fimm háskólastofnanir á sviði íslenskra fræða sameinaðar í eina undir nýju nafni. Af því tilefni mun starfsfólk stofnunarinnar leggja land undir fót til að kynna starfsemina og skapa tengsl við bæði almenning og fræðafólk fyrir austan, vestan og norðan. Heimsóknirnar eru unnar í samstarfi við heimamenn og háskólasetrin á hverjum stað ásamt fleirum.
Dagana 1.–2. nóvember héldu fjórir starfsmenn norður í Þingeyjarsveit. Þar hélt safnkennari stofnunarinnar, Marta Guðrún Jóhannesdóttir, fjölskyldusmiðju í félagsheimilinu á Breiðumýri í Reykjadal þar sem gestir fengu að kynnast handritunum, gerð þeirra og að spreyta sig á að skrifa með fjaðurstaf á bókfell.
Síðar um daginn var haldið svokallað Stefnumót í Framhaldsskólanum á Laugum en þar komu saman auk starfsmanna Árnastofnunar þau Hermína Gunnþórsdóttir, Kristín Margrét Jóhannsdóttir og Finnur Friðriksson frá Háskólanum á Akureyri sem kynntu m.a. Talís-verkefnið ásamt rannsóknum á viðhorfi Norðlendinga til eigin framburðar. Lista- og fræðimaðurinn Jack Armitage frá Breiðanesi sagði frá verkefninu Ristavél: Núritunartungumál á íslensku, Kristín Ingibjörg Hlynsdóttir flutti erindi um stafræn orðasöfn og orðabækur en þau Rósa Þorsteinsdóttir og Trausti Dagsson kynntu Ísmúsvefinn og þjóðfræðisafn Árnastofnunar.
Mánudaginn 2. nóvember fengur nemendur Framhaldsskólans á Laugum að kynnast handritagerð og handritasafnaranum Árna Magnússyni en eitt þeirra bókmenntaverka sem nemendur fást við um þessar mundir er Íslandsklukkan eftir Halldór Laxness sem byggir m.a. á atburðum á ævitíma Árna. Loks ræddi starfsfólk stofnunarinnar við kennara í framhaldsskólanum um möguleika rafrænna gagnasafna og hvernig þau geta nýst í kennslu.
Heimsókninni lauk á kynningu Rósu og Trausta á Þjóðsögum Baldvins Jónatanssonar sem var hluti af svokölluðum Brúarkynningum sem Hulda náttúruhugvísindasetur hefur haldið síðustu ár en markmiðið með þeim er að kynna verkefni og rannsóknir sem tengjast Þingeyjarsveit.
Vel var tekið á móti starfsmönnum Árnastofnunar og ber fyrst að þakka Sigurlínu Traustadóttur hjá náttúruhugvísindasetrinu Huldu fyrir aðkomu sína að skipulagningu heimsóknarinnar, starfsfólki Framhaldsskólans á Laugum fyrir hlýjar móttökur og aðstöðuna, Háskólanum á Akureyri og Háskólasetri HÍ í Þingeyjarsveit fyrir samstarfið og að lokum hjónunum á Öndólfsstöðum fyrir einstaka gestrisni.
Ferðin í Þingeyjarsveit var sú fyrsta af þremur en á starfsárinu mun starfsfólk Árnastofnunar einnig heimsækja bæði Austurland og Vestfirði.