Skip to main content

Fréttir

Alþjóðlegt sumarnámskeið í íslensku

Guðmundur Hálfdánarson kennir Íslandssögu í sumarskóla í íslensku. Mynd: Ármann Gunnarsson.

 

Í dag, mánudaginn 7. júlí, hefst fjögurra vikna alþjóðlegt sumarnámskeið í íslensku í Háskóla Íslands. Námskeiðið er ætlað erlendum háskólastúdentum. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gengst fyrir námskeiðinu í samvinnu við hugvísindasvið Háskóla Íslands og annast skipulagningu þess. Þetta er í tuttugasta og áttunda skiptið sem slíkt námskeið er haldið.

Þátttakendur eru þrjátíu og þrír að þessu sinni og koma frá tólf löndum, flestir frá Bandaríkjunum, Rússlandi, Frakklandi og Bretlandi. Þeim er skipt í tvo hópa í íslenskunáminu eftir kunnáttu en allir hafa þegar lagt stund á íslensku heima fyrir, annaðhvort hjá íslenskukennurum eða með aðstoð vefnámskeiðsins Icelandic Online I. Auk þess að nema íslensku gefst stúdentunum tækifæri til að hlýða á fyrirlestra um náttúru Íslands, sögu Íslendinga, menningu á Íslandi og íslensk stjórnmál, heimsækja Alþingi og menningarstofnanir og skoða sig um á sögustöðum.

Alþjóðasvið Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum skipuleggur fjögur íslenskunámskeið á þessu sumri. Alls taka tæplega hundrað nemar þátt í þessum námskeiðum. Nýlega lauk tveggja vikna íslenskunámskeiði fyrir vestur-íslensk ungmenni sem dveljast hér á landi í sumar á vegum Snorraverkefnisins svonefnda. Hinn 3. júlí lauk sex vikna námskeiði fyrir bandaríska stúdenta sem stofnunin stóð fyrir í samvinnu við Minnesota-háskóla. Einnig lauk þann dag fjögurra vikna norrænu sumarnámskeiði í íslensku sem haldið var á vegum hugvísindasviðs Háskóla Íslands og stofnunarinnar. Norræna ráðherranefndin greiðir kostnaðinn af því námskeiði.       

Mikill áhugi er á að læra íslensku víða um lönd, ekki síst í Norður-Evrópu og Norður-Ameríku. Með ári hverju berast fleiri umsóknir um hvers konar íslenskunám fyrir útlendinga hér á landi. Nútímaíslenska er einnig kennd við marga erlenda háskóla. Minna má á að nú starfa þrettán íslenskulektorar erlendis með styrk íslenskra stjórnvalda, tólf í sjö Evrópulöndum og einn í Kanada. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum annast umsjón með þessum styrkveitingum.