Skip to main content

Fréttir

Alþjóðlegur sumarskóli í íslensku fagnar 40 ára afmæli

Í sumar eru fjörutíu ár liðin frá því að fyrsta alþjóðlega sumarnámskeiðið í íslenskri tungu og menningu var haldið við Háskóla Íslands árið 1986. Námskeiðið var sérstaklega hannað fyrir námsmenn sem komu hingað frá erlendum háskólum í fjögurra vikna nám til að auka færni sína í íslenskri tungu, menningu, sögu, bókmenntum, samfélagi og náttúru Íslands. Þess má geta að Nordkurs-námskeið höfðu verið haldin annað hvert ár í Háskóla Íslands frá sjötta áratug síðustu aldar. Með tilkomu alþjóðlega sumarnámskeiðsins opnaðist kennsla í íslenskri tungu og menningu námsmönnum alls staðar að úr heiminum og frá 1989 hafa bæði námskeiðin verið haldin árlega við Háskóla Íslands, fyrst í samstarfi við Stofnun Sigurðar Nordals og síðan Árnastofnun.

Strax frá upphafi hefur aðsókn erlendra námsmanna verið mikil og færri hafa komist að en viljað. Árlega sækja um hundrað námsmenn um þátttöku í sumarnámskeiðinu en vegna takmarkana í kennslustofum komast aðeins um fjörutíu að. Í ár var metfjöldi umsækjenda (150) í sögu sumarnámskeiðanna og aðeins 46 voru teknir inn. Nemendum er skipt í tvo hópa eftir kunnáttu, en með tilkomu vefnámskeiðsins Icelandic Online árið 2004 var gerð krafa um að allir umsækjendur hafi lokið fyrsta hluta vefnámskeiðsins áður en þeir hefja sumarnámið. Vefnámskeiðið gerir nemendum kleift að kynna sér grunnatriði í íslensku máli og þar með undirbúa sig vel fyrir námið. Flestir námsmennirnir eru frá ensku- og þýskumælandi löndum en einnig frá öðrum löndum Evrópu, Ameríku, Asíu, Ástralíu, Mið-Austurlöndum og Afríku.

Í dag stendur alþjóðlega sumarnámskeiðið yfir í fjórar vikur í júlí og býður upp á sjötíu tíma samfellt nám í íslensku. Auk þess eru gestafyrirlestrar um íslenska menningu, sögu, bókmenntir, samfélag og náttúru Íslands. Nemendur fá góða kynningu á menningarlífi borgarinnar og farið er í kynnisferðir á söguslóðir og helstu náttúruperlur landsins. Á tímum COVID-faraldursins var boðið upp á fjarnám fyrir þá sem gátu ekki ferðast. Síðan þá hefur fjarnámið verið reglulega í boði samhliða staðkennslu. Allir námsmennirnir eru skráðir við Háskóla Íslands sem gerir þeim kleift að fá formlega staðfestingu með einingafjölda að prófum loknum.  

Margir af þátttakendum hafa orðið miklir Íslandsvinir, unnið fyrir íslensk fyrirtæki og ýmsar aðrar stofnanir á alþjóðavísu. Sumir þeirra halda áfram í frekara námi á sviði íslensku, íslenskra bókmennta eða þýðingafræði við Háskóla Íslands eða við sinn heimaháskóla þar sem nám af svipuðu tagi er í boði.

Í tilefni afmælisins eru á döfinni frekari verkefni í tengslum við hátíðardagskrá Alþjóðlega sumarskólans, m.a. hlaðvarpsþættir um sumarskólann sem auglýst verða síðar á heimasíðu Árnastofnunar. Umsjónarmaður sumarskólans (branislav.bedi@arnastofnun.is) veitir frekari upplýsingar um dagskrána sem fram undan er.