Árnastofnun leitar að öflugum aðila sem hefur metnað og vilja til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni á líflegum vinnustað í Eddu.
Við ráðningar í störf hjá Árnastofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppgjör og regluleg upplýsingagjöf um fjárreiður.
- Umsjón með bókhaldi, launavinnslu og reikningshaldi.
- Umsjón með styrkjaumsóknum og uppgjöri á rannsóknarstyrkjum.
- Áætlanagerð, markmiðasetning og eftirlit með árangri.
- Úttekt á stöðu stofnunarinnar í samræmi við lög um opinber fjármál.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á sviði viðskiptafræði eða hliðstætt próf sem nýtist í starfi.
- Þekking á bókhalds-og mannauðskerfum.
- Reynsla af áætlanagerð og uppgjöri.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
- Góð greiningarhæfni og framsetning gagna.
- Góð íslenskukunnátta og færni í rituðu máli.
- Reynsla og þekking á rekstri ríkisstofnana er kostur.
Umsóknarfrestur er til og með 30. ágúst 2026.
Fríðindi í starfi
Í Eddu er líflegt samfélag fræðimanna, háskólakennara og nemenda. Veitingastaðurinn Ýmir býður upp á hádegisverð alla virka daga sem starfsmenn hússins njóta góðs af.
Hjá Árnastofnun er einnig starfandi öflugt starfsmannafélag sem stendur fyrir viðburðum af ýmsu tagi yfir árið.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar er að finna á Starfatorgi og Alfreð. Einnig er hægt að hafa samband við sviðsstjóra rekstrarsviðs Guðnýju Rósu Þorvarðardóttur, gudny.rosa.thorvardardottir@arnastofnun.is.